Svona lítur bíllinn út... eða svona uþb. þetta er nefnileg ekki mynd af honum sko. Þetta er alger drauma dolla, sjálfskiptur und alles. En reyndar með fullri virðingu fyrir súbbanum þá þurfti nú ekki mikið til að toppa hann. En já svo við eigum þriggja bíla flota núna, námskonan/leikskólastarfsmaðurinn og smiðurinn. Jebbserríno....
Fátt annað er að frétta þó, nema ég gleymdi já sko á nýjabílnum er "spojler" en það er sko alveg skýr ástæða fyrir því. Við erum nefnilega búin að taka þá stóru ákvörðun "trommusláttur" að flytja í maí-júní (fer eftir skóla, útskriftaferð o.s.frv.) til SELFOSS!!!!!
Ég ætla bara að láta þetta duga að sinni á meðan þið eruð að jafna ykkur á fréttunum og melta þær. En svona rétt á meðan þið eruð að því ætlar Nonni að skreppa í strípur og ég að bóna spojlerinn...... huuu kannski ég blasti svoldið skímó og móti sól líka.....

2 ummæli:
Nonnonnoh!
Selfoss: til hamingju með ykkar tilvonandi Brynju, Jón og Matta.
Ó mæ god Brynja. Ég átti von á þessu en samt er þetta svo sorglegt.
Hvenær á maður þá að hitta þig kelling? Grát.
Til hamingju með nýja bílinn samt, lúkkar vel.
Skrifa ummæli