þriðjudagur, mars 27, 2007

oooolrætíþenn

já ég ætla bara að skella mér yfir á blog.is.. þar er slóðin www.magidapokus.blog.is og munið að setja að í feivurits. ;)

mánudagur, mars 26, 2007

blogg smogg

ég er mikið að spá í að breyta um blogg, ég veit að ég gerði nokkuð af því hér á árum áður, nema hvað að mig langar í blogg sem ég get gert meira við t.d. sett inn video eða lög... ég þarf aðeins að hugsa þetta og skoða hvað er í boði áður en ég fer að hætta hérna.

laugardagur, mars 17, 2007

bara allt að gerast

já ég er búin með síðasta prófið mitt í kennó... ja nema ég falli en hva... já og svo erum við búin að selja!! nokkuð gott ekki satt?

sunnudagur, mars 11, 2007

Árshátíð ótrúlegt stuð


Glæsilegar meyjar

Brjálað stuð á dansgólfinu

Björgvin Frans flottur

Ótrúlega fyndið hvað Hemmi var í góðu stuði ;)




Verið að klappa og fagna Haffa "ég er eins og ég er"




hvað er að gerast á þessari mynd??

Blómin fyrir Höllu






sunnudagur, mars 04, 2007

íbúðin er komin á sölu

Íbúðin okkar er komin á sölu, og hægt er að sjá hana á mbl.is. Fyrir þá sem ekki vita hvar ég á heima, ja þeir verða bara að giska ;@)
og því af gefnu tilefni vil ég biðja Selfossinga um að hafa augun opin fyrir leiguhúsnæði handa mér og mínum, 3-4 herbergja, helst með garði og á viðráðanlegu verði til eins ár eða rúmlega það. Einnig má sama fólk segja mér hvaða leikskóla ég á að setja Matthías á, Nú svo vantar mig einnig vinnu á einhverjum frábærum leikskóla! Ég bið nú ekki um lítið, eða hvað ;@)

föstudagur, mars 02, 2007

klikkaðir trúðar


það var keilukvöld kennó í gær. mjög mjög gaman þrátt fyrir að bestu búningakeppnin væri svolítið skrítin... en allavega við vorum trúðar, nota bene var ég trúðurinn í grænu skyrtunni þið getið séð myndir af keilukvöldinu hérna inni www.skhi.is undir myndir. Svo er bara árshátíð í næstu viku það verðu nú svaka stuð !
en ég virðist ekki geta sett myndir hér inn né seifað þessar myndir svo forvitnin verður að reka ykkur áfram. http://www.skhi.is/?s=13&m=&myndID=6371 hér er samt ein góð af okkur öllum ;)