mánudagur, desember 11, 2006

á að vera að læra undir próf...

Ég sit og hef bækurnar fyrir framan mig, en læt mig dreyma um þá tíma sem koma. Þegar það verður ekki neitt verkefni í skolanum sem aftra mér frá því að gera það sem mig langar til. Eða desember verði ekki eytt innandira með nefið á kafi í erlendum rannsóknum. Sem sýna fram á að börnum líði best þar sem farið er vel með þau, komið fram við þau af virðingu og þau föðmuð og sýnd ástúð reglulega ....


Ég er ekki að gera lítið úr því sem ég er búin að vera að læra... en ég er bara orðin svo leið. Ég er t.d núna búin að vera samtals 2+10+4+1/2+1/2+2 1/2 vetur í skóla!!! það gera 19 og hálfan vetur og mig er farið að langa til að gera eitthvað annað fyrir jól en vera í prófum ...








1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Öfunda þig ekki Brynja mín. Betri tímar koma innan skamms. Þetta fer að verða búið.

Þá verða allir happy :)