sunnudagur, desember 17, 2006

jibbí skilbbí

Jahúúúú ég er búin í prófum,. meira að segja nokkrir dagar síðan sko. Mér gekk sko... bara sæmó allavega veit ég að þetta voru SÍÐUSTU jólaprófin mín. Og ef ég náði öllu núna þá á ég bara eitt próf eftir í kennó. Það er bara ágætis tilfinning. Ótrúlega skrítin samt, hálfgerð frelsissvipting þegar skóla lýkur og vinna tekur við. En ég held að mig langi frekar eiga mér eitthvað líf um kvöld og helgar heldur en áframhaldandi skólagöngu... í bili...

Annars er ýmislegt að frétta... látum okkur sjá. Jú ég klessti súbbann, var að aka í hálku og maður bakkaði úr stæði fyrir mig.. ég væntanlega í rétti, annars var þetta kornið sem fyllti mælinn fyrir mig svo það var brunað á bílasölu og nýr bíll keyptur ...

Svona lítur bíllinn út... eða svona uþb. þetta er nefnileg ekki mynd af honum sko. Þetta er alger drauma dolla, sjálfskiptur und alles. En reyndar með fullri virðingu fyrir súbbanum þá þurfti nú ekki mikið til að toppa hann. En já svo við eigum þriggja bíla flota núna, námskonan/leikskólastarfsmaðurinn og smiðurinn. Jebbserríno....

Fátt annað er að frétta þó, nema ég gleymdi já sko á nýjabílnum er "spojler" en það er sko alveg skýr ástæða fyrir því. Við erum nefnilega búin að taka þá stóru ákvörðun "trommusláttur" að flytja í maí-júní (fer eftir skóla, útskriftaferð o.s.frv.) til SELFOSS!!!!!

Ég ætla bara að láta þetta duga að sinni á meðan þið eruð að jafna ykkur á fréttunum og melta þær. En svona rétt á meðan þið eruð að því ætlar Nonni að skreppa í strípur og ég að bóna spojlerinn...... huuu kannski ég blasti svoldið skímó og móti sól líka.....

2 ummæli:

Lára sagði...

Nonnonnoh!
Selfoss: til hamingju með ykkar tilvonandi Brynju, Jón og Matta.

Nafnlaus sagði...

Ó mæ god Brynja. Ég átti von á þessu en samt er þetta svo sorglegt.

Hvenær á maður þá að hitta þig kelling? Grát.

Til hamingju með nýja bílinn samt, lúkkar vel.