Að horfa á Sprota, Gunna og Felix
Sjálfsmynd af þreyttu fólki
Er sú eina vakandi í eftir viðburðaríkan dag Jón fór að vinna og við Matti áttum stefnumót við Þórunni á Reynimelnum þaðan var gengið rakleitt niður í bæ þar sem við....horfðum á upphitun fyrir Latabæjarhlaupið...
forðuðumst geitunga...
gengum okkur upp að hnjám og sáum í leiðinni, jólasveina, grænmetishlaðborð, ótrúlega girnilegar fiskisamlokur, rokk tónleika, Láru og Co, Elísabetu, Eddu og fullt af öðru fólki. Við hittum líka kunningja Þórunnar sem maðurinn hennar þekkti mömmu og pabba og Matta langaði svo í blöðru svo hann "kallinn" eins og Matti komst að orði gaf honum gasblöðru, sem svo síðar kvellsprakk upp úr þurru þegar við vorum að bíða eftir hamborgara við Hereford.
Við sáum líka hangandi hjól, strák með buxurnar á hælunum, Gunnu hlaupagarp og Gauja. Gunna og Felix og margt margt fleira. Settumst næstum í piss á Austurvelli og fengum okkur ís á Ingólfstorgi.
Gussi og Gunna buðu svo í grillaða borgara á melnum. Til að slá botninn úr tunnunni þá komum við við í Hamrahverfinu á leiðinni heim og horfðum á flugeldasýninguna á besta útsýniststað bæjarins.
Og hana nú þar hafið þið það!






2 ummæli:
Oh... en gaman! Þetta var sko yndislegur dagur.
jább en allir hálf dasaðir í dag...
Skrifa ummæli