sunnudagur, ágúst 20, 2006

Menningardagurinn í dag

Með sleikjó frá jólasveini í ágúst!!

Ahhh lúin bein hvíld á Austurvelli

Að horfa á Sprota, Gunna og Felix

Nei ekki taka mynd
Sjálfsmynd af þreyttu fólki


Er sú eina vakandi í eftir viðburðaríkan dag Jón fór að vinna og við Matti áttum stefnumót við Þórunni á Reynimelnum þaðan var gengið rakleitt niður í bæ þar sem við....
horfðum á upphitun fyrir Latabæjarhlaupið...
forðuðumst geitunga...
gengum okkur upp að hnjám og sáum í leiðinni, jólasveina, grænmetishlaðborð, ótrúlega girnilegar fiskisamlokur, rokk tónleika, Láru og Co, Elísabetu, Eddu og fullt af öðru fólki. Við hittum líka kunningja Þórunnar sem maðurinn hennar þekkti mömmu og pabba og Matta langaði svo í blöðru svo hann "kallinn" eins og Matti komst að orði gaf honum gasblöðru, sem svo síðar kvellsprakk upp úr þurru þegar við vorum að bíða eftir hamborgara við Hereford.
Við sáum líka hangandi hjól, strák með buxurnar á hælunum, Gunnu hlaupagarp og Gauja. Gunna og Felix og margt margt fleira. Settumst næstum í piss á Austurvelli og fengum okkur ís á Ingólfstorgi.
Gussi og Gunna buðu svo í grillaða borgara á melnum. Til að slá botninn úr tunnunni þá komum við við í Hamrahverfinu á leiðinni heim og horfðum á flugeldasýninguna á besta útsýniststað bæjarins.
Og hana nú þar hafið þið það!

2 ummæli:

Lára sagði...

Oh... en gaman! Þetta var sko yndislegur dagur.

Brynja sagði...

jább en allir hálf dasaðir í dag...