Ég veit það alveg pott þétt og hef fyrir því áræðanlegar heimildir að stundum var logið að mér í æsku sem dæmi þá er ein lygi sem ég man ákaflega vel eftir, það var þegar Halldóra systir stóð með mér úti á Upptúni og benti í áttina inn á tún (sem er í áttina að Jarlhettum og Tungufelli fyrir þá sem ekki vita hvert inn á tún er)og sagði mér að þetta græna þarna lengst lengst lengst í burtu væri Grænland.
En nú er það önnur lýgi sem ég veit ekki hvort ég sé að koma upp um, spurning hvort hægt sé að slá því föstu, að þetta hafi bara verið ýkjur. Jú það er sagan af því þegar hann Bjarni kom í heiminn. Þegar mamma og pabbi börðust á lödu sport yfir fjöll og fyrnindi með fullan bíl a krökkum í bandbrjálvitlausu veðri til að komast á sjúkrahúsið á Selfossi, því jú viti menn allt er hægt að nálgast á netinu líka veðurkort!!!
Og sjá veðrið þann 25. desember 1982!!
fimmtudagur, ágúst 17, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


2 ummæli:
Ég veit ekki hvort það þýði nokkuð að afsaka seinbúnar afmæliskveðjur... þar sem þú ert orðin svo glögg á lygar :S Djók... Ég hugsaði til þín á afmælisdeginum þínum, í þann mund sem ég mundi eftir honum ;) eg hlýt þá að hafa verið að keyra eða eitthvað og þess vegna ekki sent sms...
Til hamingju með afmælið elsku besta Brynja.
Til hamingju með daginn um daginn Brynja mín....
Kv Begga
Skrifa ummæli