miðvikudagur, ágúst 03, 2005
Allt er þegar þrennt er... nú vantar bara það þriðja
Jámm þið vissuð af hlaupabólunnu btw þá eru myndir af því inni á síðunni hans Matta... nema hvað í gær fannst LÚS í bróður mínum sem væri ekki frásögu færandi nema Matthías er í sveitinni með pabba sínum og bróðir minn að passa hann. Svo í gær voru allir kemdir og reyndar fannst ekki önnu lús haus á bænum... eeeeen Matti var með svo mikið af bólum í hársverðinum eftir hlaupabóluna að það var ekki hægt að kemba hann, og ekki var hægt að setja sjapóið.... þannig að ..... *grát* það var rakað allt hárið af höfðinu á honum *mikiðgrátgrát* allar krullurnar fengu að fjúka og ég er 99% viss um að það kemur bara eitthvað gróft strý upp aftur. Jón Óli semsagt gaf grænt ljós á að hárið fengi að fara. Hryllilegt en betra en lúsin samt sem áður... ég hef enn ekki fengið myndir sendar af viðburðinum svo ég veit ekki hvernig barnið lítur út, en sagan segir að hann sé eins og 6 ára gamall.... elltist um mörg ár.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
He he ég er viss um ad pattinn sé rosalega sætur svona skøllóttur.. ;O) en tetta er nú samt miklu betra en ad hann fái lús litla skinnid... og Brynja mín átt tú ekki ad vera ad læra ???? fannst ég hafa lésid tad hérna a sidunni ad tú værir ad læra ;O)
kv anna baunabúi
ahhhh Anna þegar maður er að læra bara verður maður að kíkja öðru hvoru á netið .... og auðvitað að skrá niður svona mikilvægar fréttir :S
Skrifa ummæli