Það er skýjað, og gjóla, ekki rok, en gjóla og hitinn er bara rétt 13.5 gráður. Ekkert miðað við undanfarna daga.
Ég er að fara í próf 15. ágúst. *dæs* Já það er ekki hægt annað en að dæsa yfir því, þroskasálfræðin verður þó vonandi tekin með trompi, enda er ég á kafi í lærdómi eins og þið klárlega sjáið..... skrapp bara pínku ponsu á netið..
Matthías er úti að girða með ömmu sinni, Dóru og frændfólki. Hann er líka að verða stór því hann byrjar á leikskóla 9. ágúst *dæs* Já ég dæsi yfir því því að krakka ormurinn er að verða 2 ára, hvort sem þið trúið því eður ei.
Jón Óli er úti að byggja fjós, og gengur ágætlega.
Og ég á að vera að læra... best að koma sér í það áður en ég verð nöppuð við að stelast á netið.
Annað svoldið sniðugt, ég var að fatta að helmingurinn af linkunum mínum eru eitthvað ruglaðir, nokkrir vísa á heimasíðuna hennar Freyju.. eða svona 4 og svo er einn sem vísar á einhverja Önnu sem ég þekki ekki neitt... en það var svoldið sniðugt inni á hjá henni svo ég skelli því bara hér með:
Athugasemd:
Námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið.
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:
FYRRI DAGUR
HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT
Skref fyrir skref með glærusýningu
KLÓSETTRÚLLUR - VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?
Hringborðsumræður
MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)
DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður - nokkrir sérfræðingar
AÐ TAPA GETUNNI
Að missa fjarstýringuna til makans - Stuðningshópar
LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi - Opin umræða
SEINNI DAGUR
TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir
HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM
PowerPoint kynning
SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar
ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir
AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA
Fyrirlestur og hlutverkaleikir
HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni
AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR
Komdu með dagatalið þitt í tímann
AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR
Einstaklingsráðgjöf og samtöl
fimmtudagur, júlí 28, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

1 ummæli:
Bwahahaha brilliant :D
Skrifa ummæli