fimmtudagur, ágúst 04, 2005

Ravisontravis

Læra smæra... á að vera að því en hangi þeim mun meir á netinu... held að ég kenni bara Lilju um það... það henntar oft vel að kenna henni um hlutina ;)

Annars er lítið að frétta alveg frá því í gær... Ja.. reyndar fór ég í bíó í fyrradag á myndina: Sem er nú ekki frásögum færandi nema ég fór út í hléi, aðalega vegna þess að ég er skræfa... ég var ekki búin að horfa nema svona á 10 mín af myndinni... og ég er AAAAALEIN heima... jæja svo var eftirhlé.. ekki nema svona uþb korter eða tuttugumín. Jæja ég var svo ekkert hrædd þegar ég kom heim neeei neeei.
En svo í gær kveldi fór ég á kaffihús með nokkrum stelpum úr bekknum og þar fórum við að tala um drauga og draugasögur og svei mér ef ég var ekki bara svoldið hrædd ein heima í myrkrinu í gær. Lilja sagði líka svo óhuggulega sögu um lítinn draugastrák sem var týndur og konu sem heyrði í honum *hrollur*

annars er hér komin mynd af litla greppitrýninu mínu sem er orðið sköllótt... svo ætla ég að halda áfram að læra :S

Engin ummæli: