miðvikudagur, febrúar 07, 2007
Happy happy joy joy
Hér á þessu heimili er allt í hershöndum, ekki bara er verið að reyna að klára vegginn heldur skellti Matti sér bara í flensuna frá og með sunnudegi og er enn með hita. En í gær gekk hann nærri fram af mér þegar kom í ljós að hann er með njálg!!! JUKKKK *hrollur* svo í morgun þurfti öll fjölskyldan að taka njálglyf janfnvel þó að eingöngu einn meðlimur væri með njálg og svo var ALLT tekið og skrúbbað, þrifið og sótthreinsað. Það er varla möguleiki á öðru en hann hafi fengið þetta í leikskólanum svo að þær voru ekkert smá ánægðar þegar ég hringdi í morgun til að láta þær vita að það væri njalli sem léki lausum hala í leikskólanum. Bara ykkur til fræðslu og yndisauka þá er hér nokkrar greinar um njálg; hér hér hér og hér (ég fæ sko eiginlega hroll í hvert skipti sem ég skrifa orðið njálgur)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli