laugardagur, febrúar 10, 2007

af mér og mínum

Matthíasi er að batna, fyrsti alvöru hitalausi dagurinn í dag á degi 7 síðan hann veiktist. Uppistaðan í fæðu hans síðustu vikuna hefur verið íspinnar og skyr, en augljóst var að hann væri að ná heilsu þegar hann bað um MAT í gær. Hann hefur einnig horft gríðalega mikið á sjónvarp undanfarna daga enda var ég svo ljúf og góð og keypti fyrir hann cartoon network, og jetix. Grey strákurinn er ekki bara lasinn heldur á góðri leið að fá kassa-augu!

Jón Óli er farinn á fyllerí... þorrablót að Laugarvatni, held að ég þurfi nú ekkert að hafa fleyri orð um það neitt,

Ég er búin með fyrsta hlutan í síðasta vettvangsnáminu mínu, þrátt fyrir að hafa ekki getað mætt mikið sökum veikinda Matta.
Ég er líka yfir mig hrifin af stígvélum sem ég keypti mér áðan, ég fékk þau ásamt svörtum spariskóm á heilar 6000 krónur íslenskar.
Ég legg nú bara ekki meira á ykkur.

Engin ummæli: