mánudagur, febrúar 12, 2007

Fleiri fréttir

Hér í Grafó er nú lífið svo sannarlega ekki rólegt. Hér gerist hver æsispennandi hluturinn á fætur öðrum.
T.d. berjumst við fjölskyldan við ósvífinn þjóf í bílageymslunni, hann hefur ekki eingöngu stolið af okkur svömpum, bílasápu og tjöruhreinsi heldur einnig heilu kartoni af klósettpappír. Við höfum þó geðilla Litháan sterklega grunaðan, en ekki af því að hann er Lithái heldur því að hann er ávallt frekar geðillur út í okkur, og einnig vegna þess að mér finnst fólk sem bónar bílinn sinn með borvél grunsamlegt.

Annar æsispennandi atburður gerðist áðan þegar Jón Óli hringdi í mömmu sína eftir snúðauppskrift. "því þeir eru miklu betri en snúðarnir í Reykjavík" (vitnað beint í símtalið við tengdamóður mína) Jæja flestir sem mig þekkja vita að mér finnst mjög gaman að elda, (skemmtilegra þó að borða en það er önnur ella) já en bakstur er ekki eins vinsæll hjá mér, ásamt því sem ég strengdi þess heit fyrir uþb 2 árum að baka aldrei aftur kanils snúða. Sumpart því að þeir standast als ekki væntingar hjá manni sem finnst mömmu snúðar bestir. Það sem gerir þessa baksturs aðfarir hans Jóns svona spennandi eru sífelldar hringingar til tengdó (sem er á kóræfingu á Hellu) til að spyrja spurninga eins og "hvað er tvö til þrjú egg mikið í alvörunni?" "hræriru í hrærivél eða geriru holu í hveiti á borðinu" "má nota heilhveiti í uppskriftina á móti hveitinu" "má nota létt ab mjólk á móti súrmjólkinni" og svo framvegis. Síðustu spurningarnar eru sprottnar af því að áður en hafist var handa við baksturinn athugaði hann ekki hvað af efninu væri til í skápunum hérna og þegar leið á efnablöndunina kom í ljós að ekki var til lyftiduft á heimilinu, rétt eins og ónóg súrmjólk og lítið af hvítu hveiti. Svo hann skondraðist yfir til nágrannana (ekki klikkaða litháans þó) og fékk nokkrar teskeiðar af lyftidufti lánað.

Svo er það aðalfréttin, stóratburður sem mun gerast á laugardaginn næsta, því að þá er einmitt 4 ára trúlofunar afmæli okkar Jóns Óla og 8 ára sambandsafmæli.. þar hafi þið það...

2 ummæli:

Lára sagði...

Hahaha... gaman gaman! Þessir karlar eru nú alveg magnaðir...

Nafnlaus sagði...

úff þetta er frekar fyndið. Við Danni erum hér að hlæja að þessum bökunaraðferður Njólans. Gaman af því hvað þeir félagarnir eru duglegir við baksturinn á heimilum sínum.

-Ragnhildur