föstudagur, janúar 26, 2007

okei okei ..sko

okei sko ég get ekki sofnað fór á netið og endaði hér.
Ég var sko í saumó/kjaftó/étó þar sem aðeins tvennt síðast nefnda var rétt. En já og ég sem ekki er búin að drekka koffín, né reykja í ár og ekki búin að borða nánast neinn einasta sykur í eina og hálfa viku, leyfði mér það í tilefni af kjaftó að borða það sem í boði var. Og vitið þið bara hvað, ég er búin að vera í þvílíku sykur sjokki, ég sko er eins og eftir tíu kaffibolla. Crapadildo sko hvað er maður að láta ofaní sig á þessum síðustu og verstu. Ég er sko eins og teiknimyndafígúra "éggetsvosvariðþa" (á innsoginu) blikka varla augunum og get varla skrifað á lyklaborðinu því að ég er hreyfi puttana svo hratt að þeir hitt helst ekki á rétta takka....

annars gengur allt bara vel í you know what, og að halda mig á strikinu hjá you know who..... þannig að þetta er allt í bullandi gangi bara og ég bara er á beinni línu niður.. veit reyndar ekki hvað you know who segir á morgun þegar ég fer í you know what.

Eitt enn paranojaðasta kona sem ég hef heyrt af varðandi slys á börnum og allt það er að verða með fyrirlestur/námskeið á starfsdegi á morgun SPENNANDI. Og í kjölfarið AFHVERJU ER EKKI SKILDA FYRIR KENNARA AÐ LÆRA SKYNDIHJÁLP?????

og að lokum ég held að ég muni dreyma Guðmund í Byrginu, við ræddum um hann og hans aðfarir í bóli sem og fjármálum í étó áðan, svo var ég aðskoða póstinn minn og viti menn þar var afturendinn á honum líka (sem flest ykkar eruð væntanlega búin að fá frá mér núna). Og ekk nóg með það heldur fer ég bæði á www.69.is (sem er ekki kynlífssíða, kíkiði bara) og www.b2.is og þar var ekkert nema lille venen til sýnis. Hvörslags er þetta eiginlega, maður gæti þekkt Ironman rassin bara úr lineup!!!!

ég verð að fara að sofa í hausinn á mér og dreyma fallega drauma um Herdísi og Iron man, gott ef ég bæti ekki you know who bara inn í drauminn líka og þá verður þetta ágætis súrelísk súpa ;)

3 ummæli:

Lára sagði...

Ojbarasta Brynja þó! Ég var búin að segja þér að ég kæri mig kollótta um að sjá þessar myndir... Svo var þetta það fyrsta sem ég sá í morgun, nýbúin með kornflexið mitt, ekki einu sinni búin að drekka kaffið mitt og ennþá með stýrurnar í augunum. Hefði ég bara verið búin með kaffið mitt og með kveikt á fattaranum mínum (sem virkar stundum) þá hefði ég kannski metið póstinn frá þér eitthvað sem ég kærði mig ekki um að sjá. Svo núna þegar ég er nýbúin að þurrka þessar myndir úr minni mínu og farin að huga að einhverju öðru... þá þarft þú endilega að minna mig á þetta hérna á litlu sætu síðunni þinni.
Svei þér Brunja og þínum You know who og you know what... af því að ég fatta það ekki heldur en er þó búin með 2 bolla af kaffi.
En ég er sammála þér um það að skylda kennara á skyndihjálparnámskeið.
Luv... Pís... sjáumst :)

Nafnlaus sagði...

You know what og you know who.

I'm feeling a little out of place here. Skil ekki neitt.

Nafnlaus sagði...

sko það er nú ekkert leyndó.. en for me to know and you to find out .....