laugardagur, febrúar 03, 2007

abrakadabra ný tölva!

Eitt!
Nei ekki alveg ný en svo til, tölvan var nefnilega að koma úr yfirhalningu sem byrjaði á því að ég fór að kaupa nýjan straumbreyti og seinna um daginn var tölvan komin í viðgerð og endaði á nýjum hörðum diski, stærri en sá fyrri, svo til ný vifta þar sem hin hafði verið óstarfhæf vegna þykks ryklags og að sjálfsögðu nýjum straumbreyti. Og kostaði mig ekki krónu með gati þar sem sú tilviljun var að tölvan var enn í ábyrgð.
Annað!
verð að benda á svoldið sniðugar síður þar sem hægt er að horfa á ýmsa þætti og myndir sem í boði eru í sjónvarpi og bíóhúsum dagsins í dag. Það eru síðurnar http://www.alluc.org/alluc/ og http://tv.peekvid.com/
Eitt enn!
Finnst skrítið þegar að fólk úti í bæ er að blogga um fréttir á mbl og svo kíkir maður þar inn og þar eru bara myndir af þeim að kúra uppí sófa með börnunum eða standa og láta taka mynd af sér með allt í drasli á bak við sig.. sko ég veit að ég set myndir hér inn en ég er ekki að linka á mest lesna vef landsins og það á forsíðufrétt... eða hvað er þetta kannski það sama??? Kannski er munurinn líka sá að ég ígrunda það nú nokkuð hvaða myndir fara hingað inn... og talandi um myndir, best að skella einni af mínum hárprúða súperman, hingað inn ykkur til ánægju og yndisauka ;)




1 ummæli:

Lára sagði...

Ohh... sjá þessar krullur.