sunnudagur, janúar 14, 2007

Gleðilegt ár!!! og allt það

Nú er kominn 14 janúar og ég að skrifa mína fyrstu færslu á nýju ári.
Jól og áramót fóru afskaplega vel fram, þrátt fyrir að við endasentumst um suður- og suðvestur hluta landsins eins og þeytispjöld.
Um áramót vorum við hjá þeim Rögnu Héðni og sonum rétt eins og venjulega og höfðum það ósköp gott.
Annars er ég bara búin að vera að vinna og svo byrjar skólinn aftur á morgun.

Það sem er þó nýjast að frétta er að við fórum í leikhús í gær, eitthvað sem maður hefur nú ekki gert í mörg ár, svei mér þá!!! Það var nefnilega þannig að við fengum gefins miða í jólagjöf fyrir rúmum tveimur árum síðan.. og miðinn var að renna út í des svo hlaupið var til að keyptur miði á þá sýningu sem okkur leist best á, ekki er þó um auðugan garð að gresja hjá Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Gunna, Guðjón, Arnar, Birkir og Brynja fóru líka enda fengum við öll eins gjöf ;)
En já við sáum Stórfengleg með Ólafíu Hrönn í aðalhlutverki, og að mínu mati var þetta bara ansi góð sýning. Við höfðum nákvæmlega engar væntingar og því kom það skemmtilega á óvart hvað leikritið var skemmtilegt.... allavega að mínu mati. Jóni leið eins og hann væri í kirkju.... Jæja þegar leikritinu var lokið fórum við til Gunnu og Gauja borðuðum doritos og spiluðum það hálfvitalega spil MEISTARANN

Meistarinn er spil sem byggt er á samnefndum sjónvarpsþætti. Það er samið af Loga Bergman (beygir maður það Bergmanni? hehe) og ég mæli EKKI með því. Reglurnar eru óskiljanlegar, spurningarnar sumar kjánalegar, vitlaus svör við sumar spurningar, stafsetnigavillur bæði í reglum og spurningum. einhverjar 7 tegundir af spjöldum sem á að nota í spilinu, og svo mætti lengi telja. Hálfvita spil sem ég og Gunna unnum þó!

1 ummæli:

Lára sagði...

Ég er stolt af þér Brynja, þú getur þetta ennþá ;)