Fékk þessa skemmtilegu orðuðu auglýsingar sendar í pósti og má til með að pósta þeim hér, njótið vel.
Óheppilega orðaðar auglýsingar
1. Sérstakur hádegisverðarmatseðill: Kjúklingur eða buff kr. 600, kalkúnn kr. 550, börn kr. 300.
2. Til sölu: Antikskrifborð, hentar vel dömum með þykka fætur og stórar skúffur.
3. Nú hefur þú tækifæri til að láta gata á þér eyrun og fá extra par með þér heim.
4. Við eyðileggjum ekki fötin þín með óvönduðum vélum, við gerum það varanlega í höndunum.
5. Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu í góðu ástandi.
6. Þetta hótel býður upp á bowlingsali, tennisvelli, þægileg rúm og aðra íþróttaaðstöðu.
7. Brauðrist: Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimir elska, brennir brauðið sjálfvirkt.
8. Ísafjarðarkaupstaður: Starfsmann vantar kvenmann, til starfa.
9. Vantar mann til að vinna í dínamítverksmiðju. Þarf að vera tilbúinn til að ferðast.
10. Notaðir bílar. Því að fara annað og láta svíkja sig. Komdu til okkar!
11. Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem hvorki reykir né drekkur..
12. Ólæs? Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita þér ókeypis aðstoð.
sunnudagur, desember 10, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

1 ummæli:
Hahaha snilld.
Skrifa ummæli