Mikka Ref kakan vakti gífulega lukku jafnt hjá börnum sem fullorðnum. Eins gott sko...
En já þrískiptu afmæli er lokið, og mun ekki koma aftur fyrr en að ári.
Ég er þó ekki farin að kvíða því strax heldur er annar kvíði farinn að hreiðra um sig í maga mínum.
Það eru ekki verkefnin sem eru í full swing um þessar mundir og ekki eru það prófin sem taka við í byrjun des, ekki eru það jólin og allt vesenið í kringum þau. Nei ég er farin að kvíða flugferðinni sem áætluð er í Maí. Ég er nefnilega á leið í útskriftarferð og ég er strax farin að kvíða. Ekki er heldur nóg með að flugferðin eigi að eiga sér stað heldur eru nánast engar líkur á öðru en hún verði löng.. já því ævintýraferð er það stefnt er á. Áfangastaðir á við Bahamas eða Hawaii, Tailand og jafnvel Venesúela er allt til umræðu. Ég hlakka í raun ansi mikið til ferðarinnar... fyrir utan flugið ég kvíði því bara ansi mikið.
Ps. er einhver sem les þetta eða er ég bara að röfla í sjálfri mér hérna.. ekki að mér finnist blaðrið í sjálfri mér ekki skemmtilegt en gaman væri að sjá komment svona öðru hvoru ;)



5 ummæli:
Ég fylgist með þér! Always!
Stelpurnar tala ennþá um Mikka Ref kökuna hans Mattasar (þeirra framburður ;))
flott kaka,Brynja mín. enda fallegur maður þar á ferð.
Lilja
Ó dear... I´m reading!
Hæ hæ frábær kaka!! Held að þið Svenni frændi þinn ættuð að skella ykkur saman á flughræðslunámskeið!!
Kveðja Selma
Magga hvað er urlið þitt.. ég veit bara ekki hvar ég get lesið þig lengur ;(
Lilja, verst að þú skyldir bara erfa hárið ;)
Lára, ég vissi nú af þér gæskan ;)
Selma, ég er búin að senda e-meil til Icelandair til að kanna hvort þeir séu ekki með svona námskeið bráðum, ég og Svenni ættum kannski að skella okkur saman ;)
Skrifa ummæli