miðvikudagur, nóvember 08, 2006

Það er að stigmagnast..

stessið það er að segja!
Matthías á afmæli á laugardaginn og viti menn ég stend við hengiflugið... er eiginlega farin að átta mig á því að stressfactorinn í mínu lífi er mun meiri í sambandi við þetta afmæli heldur en nokkutíma verkefnin og prófin. (Fyrir þá sem eru hissa vinsamlegast hugsið ykkur hvar ég var fyrir nákvæmlega ári síðan).
Því er það bara að þrauka fram yfir helgina og þá er þessu bara lokið og eingöngu ár í næsta.......

Það skal nefnilega enginn halda það að ég sé að fara að ráða einhverju í sambandi við þetta afmæli. Matti er búinn að vera að skipuleggja það síðan í sumar. Um miðjan september áttum við þessar áhugaverðu samræður mitt á milli gos og kex rekkans í Hagkaup:
Matti: Mamma, þegar ég á afmæli þá ætla ég að fá köku.
Mamman: Já það eru oft kökur í afmælum
Matti: Já ég ætla að borða Mikka Ref köku
Mamman: (næstum of gáttuð til að geta svarað) jaaahá það er ekkert annað
Matti: Já mamma þú ætlar að baka Mikka Ref köku fyrir mig
Mamman: jaaajaaa *ræskj* jajájá ætli það ekki

Ég veit að þarna fór aftur að hökta á mér hjartað, ekki bara það að reyna að klambra saman köku á mesta álagstíma og bjóða einhverju fólki heim í hálfgerða fermingarveislu, þá eru væntingarnar orðnar svo gífurlegar með margara mánaða tillhlökkun að ég veit ekki hvort hægt sé að standast samanburð. Því ó já hann er að búast við einhverju svakalegu. Hann byggir hverja skýjahöllina á fætur annari sem svo brotnar hver af annari þegar hann áttar sig smátt og smátt á því að ég stenst enganvegin samanburð við sögur annara af afmælum.
Ekki nóg með það að afinn er að grafa undan alræði mínu (sko mamma þú ræður ekki bara ég, pabbi og afi í vestó) heldur myndi ég trúlega verða núll og nix eftir þessa helgi ef ég hefði ekki eitt tromp upp í erminni..
Jú því ég komst á snoðir um ótrúlega sniðugt ... það er hægt að prenta myndir á marsípan!!!

Skref eitt var að gúggla hann Mikka, og ekki gekk það.
Þá spurði ég ættingja Mikka hvort þeir ættu nokkuð mynd af honum, og ekki gekk það.
Þá reyndi ég á barnalandi, og ekki gekk það.
Þá tók ég bara á mig rögg og sendi bréf til vinnuveitanda Mikka og viti menn ég fékk þessa líka fínu mynd senda um hæl.
Þannig að núna er einhver Hérastubbur að prenta fyrir mig Mikka ref á marsípan sem svo mun prýða gómsæta Bettý hér um helgina.

Ég sendi trúlega fréttir næst eftir helgi.. það er ef ég mun bogna en ekki brotna :S

Lifið heil !!

Engin ummæli: