sunnudagur, júlí 09, 2006

*dohhh*

Jæja við erum komin heim eftir fyrstu útilegu sumarsins. Frábæru veðri var SPÁÐ takið eftir já því var spáð en viti menn öllum að óvörum þá var ekki hægt að treysta á veðurspá helgarinnar fyrir vesturlandið og bongóblíðan sem við áttum von á í skorradalnum varð að skýjabökkum sem fór að rigna úr á laugardeginum og hurfu svo á aðfaranótt sunnudags og orsökuðu því minna en 4 gráðu hita yfir blá nóttina. En skemmtilegt var samt sem áður og langar mig bara aftur í útilegu sem fyrst.

Ég fór svo á vefflakk áðan og hér koma nokkrar skrítnar, skemmtilegar eða áhugaverðar síður fyrir ykkur að skoða.
nr 1. Puppet tool ýttu bara á enter og þú kemst beint í skemmtunina
nr 2. Brúnó karlinn
nr 3. Kjötauglýsing
nr 4. Trygginga auglýsing
nr 5. b2
nr 6. nektarmyndir frá mörgum tímabilum, áhugavert hverjar áherslurnar eru í líkamsþyngd á milli áratuga.
nr 7. fyndin videoklipp, farðu yfir topp tíu ef þú villt kitla hláturtaugarnar

1 ummæli:

Lára sagði...

Jæja Brynja mín... ertu hætt?