Jamm, þá er bara komið sumar í mínum huga. Prófið búið og verkefnaskilum lokið, ja nema auðvitað þessi verkefni sem að ég varð að sleppa fyrir jól. En það er bara pís of keik..eða hvað.
Íbúðina fengum við afhenta fyrir viku síðan, á morgun er vika og hún var í aðeins verra ástandi en við bjuggumst við. Við erum ekki enn flutt inn því að þar sem ég var á fullu í prófum, þurfti einhver að vera með Matthías á kvöldin svo Jón gat ekkert byrjað að mála eða gera.
Já svo þurfti líka að gera margt og mikið fyrir rafmagnið í eldhúsinu og verið er að hnika til einingum í innréttingunni fyrir uppþvottavélina. Já þetta kemur allt með tímanum pabbi og Bjarni eru að fara að koma aftur í kvöld að reyna að gera eitthvað meira í þessu já og ég er að fara í Ikea að versla Vúhú ;)
Hey og viti menn Jón Óli var að skoða splas á netinu í gær og þessa mynd fann hann, reyndar sagði hann orð rétt: Brynja afhverju í ósköpunum er mynd af þér á splas síðunni?! hehe en hér erum við ;)
sunnudagur, maí 07, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


4 ummæli:
Bwahahaha... SNILLD!
*hóst* hvenær var þetta ??
Híhí
Hvað kemur til að ég er EKKI út með tunguna?
Á góðri leið með hana út eeenn þetta sleppur :)
Ég varð auðvita að kíkja á www.splash.is en hérna.... ég hafði ekki HUGMYND um að það hefði verið Splash partý þegar við vorum þarna!!??!!
Nóbb ekki heldur
Skrifa ummæli