mánudagur, maí 15, 2006

aðfaranótt mánudagsins 15. maí 2006

Við erum algjörlega flutt út, búin að skrúbba, skúra, þurrka af og þvo í allan dag. Þórunn kom og hjálpaði okkur við að þrífa skítinn eftir okkur en það hafðist að lokum. Lyklar verða því afhentir með glöðu geði á hádegi á morgun.
Kannski ég smelli mynd inn á morgun... en ekki núna því ég finn ekki neitt í pappakassaflóðinu sem er hér í stofunni né heldur í plastpokaflórunni. Kannski kemur þetta allt í ljós þegar farið verður almennilega að raða inn ... en svona ykkur að segja kláraði ég að raða í elhúsið í gær ;)
Ps ég mun sko ekki flytja á næstunni þetta er alveg drepleiðinlegt að vera í svona veseni.

Kv Brynja sem er orðinn íbúi í annari götu annarstaðar í Reykjavík en þó bara rétt hjá!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með flutninginn :)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju elskan mín.. hlakka til að sjá herlegheitin ;)