Já hún var bara ljómandi góð helgin okkar, brunuðum austur í sveitin á föstudaginn og Jón Óli fór á Karlakvöld karlakórsins og að karlasið var eitthvað einfalt í matinn, það var saltkjöt og baunir, í fyrra var víst hrossakjöt. Ekkert að vera vesenast við matseld bara henda einhverju í pott og kveikja undir, setja það svo í á stórt fat og þeir geta fengið sér sem vilja... ja eða svona næstum því.
Föstudagurinn hafði þó ekki byrjað kræsilega fyrir 80% allra höfuðborgarbúa, ja eða alla þá sem þurftu að koma bílnum sínum frá stað A-B já eða A til B og frá B til C og frá C til... og svo framvegis rétt eins og ég þurfti að gera. Umferðin lúsaðist áfram í hlykkingum allir mjökuðust til vinnu og rétt um það leyti sem sá síðasti í röðinni var búinn að leggja í stæði fóru fyrstu að leggja af stað heim úr vinnunni.. ég var ekki nema rúman klukkutíma á leið heiman að frá mér og út í leikskóla frá leikskóla og út í skóla!!
En helgin já við Matti fórum út í snjóinn ásamt öðru heimilisfólki en Jón greyið lá í rúminu fram eftir degi.. hehe samt svoldið gott á hann.. bara svona smá
Svo var skírn í Hrepphólum í dag hjá Rögnu Guðnýu og Héðni pilturinn heitir Eiður Helgi og þið getið óskað honum til hamingju með nafnið á heimasíðunni hans, nú eða hringt í foreldrana og spjallað.
jæja ætla að horfa á liti hafsins eða hvað þessi þáttur heitir nú... adju
sunnudagur, janúar 15, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli