Okei hér er svona leikur en ég tók út spurningar 4 og 5 þar sem þær fannst mér svo kjánlegar.. ja eða kjánalegri en hinar.
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
Bónusspurning:
16. hvenær áttu afmæli og hvað ár komstu í heiminn??
fimmtudagur, janúar 12, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

3 ummæli:
1. Lára
2. Já, ég myndi segja það, svona fyrir utan það að vera fyrverandi bekkjasystur líka.
3. Einhverntímann fyrstu vikurnar í gamla góða reykingarhorninu og að sjálfsögðu í tímum.
4. ???
5. ???
6. Sveitastelpa: af því að þú kemur úr sveit og býrð yfir svo mikilli reynslu þaðan. Orðaforði þinn og þekking eru lituð af uppruna þínum gæskan ;) og ég hef mjög gaman af því... næstum öfunda þig.
7. Sætyndiskjarnakona.
8. Ég man það ekki... en eflaust fannst mér mikið í þig spunnið.
9. já!
10. Hmmm, það gæti verið margt... kannski eitt af því: Mynd af undirhöku.
11. Ótta- og kvíðastillandi te sem VIRKAR!
12. Ágætlega.
13. Í hádeginu, í dag.
14. Nei.
15. Kannski?
16. 6.júní 1975.
1. Hver ert þú?
ég er Ragga Hilmars á laugarvatni
2. Erum við vinir?
jamm við erum pella ég og Brynja:-D
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
hmm...á balli í grunnskóla, man samt ekki alveg eftir því en veit að það var þar, kynntumst svo almennilega þegar ég var búin að láta vígja mig inni í ML
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
Brynja beib, því þú ert svo mikið beib :)
7. Lýstu mér í einu orði.
frábær
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
örugglega bara vel, en eins og ég sagði man ég því miður ekki alevg eftir fyrsta mómentinu
9. Lýst þér ennþá þannig á mig? mun betur
10. Hvað minnir þig á mig? Kleifarvatn, því ég enn eftir að skila bókinni til þín og í hvert sinn sem ég lít uppí hillu man ég "verð að fara koma mér til Brynju"
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? flugvél og bát
12. Hversu vel þekkiru mig? bara ágætlega
13. Hvenær sástu mig síðast? hmm...líklega þegar eg fekk bokina lánaða...í september!!! ég veit...þetta er hrein skömm...
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? nee held ekki
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig? búin og sammála með spurningu 4 og 5 fattaði bara ekkia að taka þær út!!
Bónusspurning:
16. hvenær áttu afmæli og hvað ár komstu í heiminn?? 0606 ´82
Lára: óþarfi að minnast svona vel á undirhökuna múhahahahah
og takið eftir lesendur góðir að báðir þeir sem búnir eru að svara eiga afmæli sjöttasjötta ;)
Skrifa ummæli