miðvikudagur, janúar 18, 2006

hugvekja dagsins

Matti er slappur, ég vaknaði seint klukkan hálf átta og þá tók það því varla að reyna að fara í skólan, klukkutími að koma matta í leikskólann og komast út og svo klukkutími í skólann.... enda átti ég bara að vera í tveim tímum í dag.

Annars er ástæða hugvekjunnar í dag sú að Matti er að horfa á Söngvaborg. Söngvaborg er eitt það mest pirrandi barnaefni sem til er, eftir því sem ég heyri þennan disk oftar þeim mun pirraðari verð ég. Þær stöllur sem um þetta sjá halda að þetta sé alveg frábært hjá þeim, jú jú enda er það voða gaman að syngja og láta börnin syngja en setningar eins og " já munið þið krakkar svo er mjög mikilvægt að klára af disknum sínum" fara svo undir skinnið á mér og klóra þar fram eftir degi. Ég veit ekki hvaða uppeldismarkmiðum þær fara eftir, eflaust eru það engin. Enda seldu þær sál sína Nóa Siriusi, Sól hf og Íslandsbanka með því að láta auglýsingarnar vera skylduáhorf (það er ekki hægt að hoppa yfir þær í byrjun disksins) Svo klikkja þær út með því að á miðjum disknum predika þær um sparnað og annað slíkt og undir er spiluð auglýsing með Georgi. Verst finnst mér samt auglýsingin á nýjustu útgáfu söngvaborgar, þar sem Svala auglýsingin er, þær leika e-h ævintýri um prins og prinsessu (sem að mínu mati er svooo hrikalega illa leikin að það er eins og að skrapa úr sér eyru og augu að hlusta og sjá hana) jæja prinsinn vekur prinsessuna upp af værum svefni með því að gefa henni "svala" drykk, byður hennar svo og auðvitað er prinsessan heiladauður hálfviti því hún segir já og amen. Köttur úti í mýri setti upp á sig stýri, úti er ævintýri. *æl*

Nú veltið þið því eflaust fyrir ykkur því í ósköpunum ég leyfi birtingu á þessu efni innan minna veggja, jú ástæðan er einföld. Megn óbeit mín á þessu efni var ekki til staðar þegar diskarnir voru verslaðir, svo hefur heimskan sem kemur fram á milli laganna á diskunum verið að síast og malla allan þennan tíma. Nú er svo komið að ég set þessa diska ekki í tækið og mér er skapi næsst að henda þeim. En jú Matthíasi þykir samt einstaklega gaman að horfa á þetta og það er það sorglegasta af öllu!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hey ég get alveg hoppað yfir auglýsingarnar í byrjun, ýti bara á menu!!
Annars er ég blessunarlega laus við þetta Söngvaborgaræði hjá mínum, þær vilja bara horfa á Shrek, Nemo og Dýrin í Hálsaskógi :)

Ég held að leikskólinn hafi einhver áhrif, Rósa Kristín ELSKAR Söngvaborg!!

En er Lotta eitthvað skárri en Sigga og María??

Brynja sagði...

nibb menu virkar ekki á auglýsingarnar inni í miðri dagskrá... en ég er eignlega alveg búin að láta honum takast að gleyma þessu, ýti frekar einhverju öðru að honum. En stundum, eins og í morgun, þá sá hann söngvaborg inni í skáp og bað virkilega vel um það..

En já samanburður á Lottu og söngvaborg... sko Lotta er ekki að gefa út einhverjar uppeldisleiðbeiningar eins og að allir eigi að klára af disknum sínum eða að það sé rosalega mikilvægt að sjá vel og heyra vel.. allt frekar svona vanhugsað hjá þeim. Lotta er jú óþekk en mamma hennar t.d skammar hana, ekki satt!! Ef við förum að gagnrýna Lottu þá held ég að Emil í Kattholti sé enn verri þar er hann kallaður strák skratti og hann skammaður fyrir hluti sem er svona réttir á vissan hátt eins og að gefa fátæklingunum að borða. Nei ég leifi áhorf á Astrid Lindgren sögur hvenær sem er í staðin fyrir markaðsetta auglýsingavöru eins og Siggu og Maríu. ;)

Lára sagði...

Sammála þér Brynja mín... og ég gæti haldið áfram að telja upp sorann sem finnst á Söngvaborginni, en ætla bara að sleppa því og segi bara: ...Megi þessir geisladiskar verða fyrir óbætanlegu tjóni inni á heimilum okkar, af slysvöldum... Amen!