ég er semsagt með :
Truflanir í leiðslukerfi hjartans
Leiðslutruflanir stafa oftast af því að frumuklasi byrjar að senda rafboð utan rafleiðislukerfisins. Einkenni geta verið hraður óreglulegur púls, svimi, máttleysi, mæði og brjóstverkur. Hjartsláttaróregla getur komið bæði í hvíld og við áreynslu.
Ofan á þetta bæti svo álag, stress og kvíði sem gerir það aðverkum að ég fékk ávísað bæði kvíða/þunglyndilyfjum ásamt hjartatöflum. Þær á ég að bryðja fram að jólum þá fer ég aftur til hjartalæknisins.
Hann benti mér á það að segja mig úr einhverjum fögum til að minnka álagið, sem ég hef og gert og mun gera... og hann sagði að ég ætti kannski að fara í hjartaþræðingu. Þá er eitthvað þrætt inn eftir handleggnum á mér alla leið að hjartanu og að þessum frumuklasa og hann brenndur í burtu. Á meðan á þessu stendur á ég að vera vakandi... jamm æ sveritt.
jæja ætla að gera ekki neitt
fimmtudagur, nóvember 24, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

7 ummæli:
Gvöð! er það ... vakandi? Jeremías minn!
Ja hérna! Úff, ég myndi ekki meika að vera vakandi í svona aðgerð :/ En gangi þér vel Brynja mín að bryðja þessar töflur þínar og slakaðu nú vel á :o)
Jesús minn!! Váá vakandi á meðan?? OMG sko..
Stórt *KNÚÚÚÚÚS*
Ojjj vakandi!
Sjæse!!
Ég skal halda áfram að hugsa fallega til þín elskan mín *knús*
Úfff, hvað er í gangi? Þú sagðir mér frá því að skrá þig úr fögunum en ekki frá hjartaþræðingu... það er svakalegt! Eins gott að þú hugsir nú vel um heilsuna og takir lífinu með ró. Býst við því að það verði engar green tea töflur fyrir þessi próf hjá þér.
Jahá. Gott að það er kominb skýring á þessu. Er þetta kannski það sama og hann Örn sundkappi var með? Sá það allavegana í fréttunum að hann hafi verið í einhverri aðgerð þar sem var brent fyrir eitthvað í hjartanu og þá á það bara að vera búið.
Vona allavegana að þetta lagist og þú finnir aldrei fyrir þessu aftur.
Batniknús!
Jamm ég og Örn við getum deilt reynslusögum.. Jammm sko en það er ekkert skorið neitt heldur er bara þrætt eitthvað eftir æðunum að hjartanu og brennt þessi frumuklasi í burtu, þ.e ef hann finnst...
en það er nú samt ekkert víst.. það á að athuga aftur með mig 22. des þegar ég fer aftur til hjartalæknisins.
Skrifa ummæli