miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Jólakort

vitið þið að ég og Jón sendum yfir 40 jólakort?!?! 40 x 7 =2100 krónur og svo er það kostnaður við gerð kortanna Y x 40 + 2100 = alla malla margir peningar.

Jæja ég ætla að fara að gera eitthvað í þessari ferilmöppu minni .. æði ekki satt


Espresso!

Þú ert með eindæmum sjálfsöruggur einstaklingur. Þú ert vandvirkur og samviskusamur en lætur það þó stundum eftir þér að fresta verkefnum til morguns. Þú ert á sífelldri hraðferð án þess þó að það hái þér á nokkurn hátt.

Þú ert 30 ml af mikið brenndu eðalkaffi.


Jahhhhaaaa eða ekki... þetta próf tel ég semsagt ekki vera mjög áræðanlegt miðað við nýjustu vitneskju mína um minn andlega og líkamlega stuðul :@0

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Við endum líka um 40 jólakort og þá er ég búin að kötta allverulega á þetta!!
Það er bara gaman að því :)

Nafnlaus sagði...

Ég er líka með svipaðan fjölda af jólakortum og þetta er svakalegur kostnaður! Það þarf að kaupa efni í kort, skraut á það, framkalla myndir fyrir þetta, kaupa umslög og svo frímerki! Af hverju er maður að þessu? ;o)

Brynja sagði...

ÉG skil það ekki.. á hverju ári þá lofa ég sjálfri mér að minnka listan.. en allt kemur fyrir ekki, því það bætist þá bara nýtt fólk á listann í staðin fyrir það sem ég sleppti út :S