á öllum vígstöðvum vill fólk fá fréttir og síminn stoppar ekki. Híhíhí svo klikkir fólk út með því að segja og hvíldu þig svo.. og svo hringir síminn aftur... nei það er ekkert smá notalegt að finna hversu marga maður á að þegar svona stendur á og þið eruð öll æði.
Nýjustu fréttir eru semsagt þær að núna er ég eins og klukkukonan, ég er tengd við sírita sem á sjúkrahúsamáli er víst kallaður "holter" Ég fékk hann um eitt í dag og verð með hann þar til 11 á morgun og hann tekur upp hjartsláttinn minn þangað til.
Konan sem setti hann á mig sagði svo; " svo hagarðu þér bara eins og venjulega, og ef það er einhverjar aðstæður þar sem þú veist að hjartað fer að haga sér undarlega þá endilega gerðu það" Hún semsagt vill hels af öllu að ég fái eitt enn kvíðakastið...!!!! Neeee kannski er ég að leggja of mikla merkingu í orðin hennar.
Ég er annars búin að vera sæmileg frá því á laugardagsmorgun, nema ég þarf að eyða allri minni orku í það að halda aftur af kvíða/ofsláttarkasti á kvöldin. Það er alveg ferlegt að vera að fara að sofa, liggja milli svefns og vöku og fá svo adrenalín skot neðan úr maga, það er svona tilfinning eins og þegar þú lendir næstum í bílsslysi, eða þú horfir á barnið þitt detta næstum niður stiga... æi svona bara adrenalín skot sem skýtur "vakn þú og vertu viðbúin" skotum um allan skrokkinn.
En ég er að vinna í því að slaka betur á fór í nudd í gær, og í dag, fór svo og fékk mér slökunardisk, þar sem góði diskurin minn er alveg týndur. Ég fékk mér líka hjartaslakandi steina, sem kannski gera ekkert gagn, en ef ég næ að ljúga því að mér að þeir geri gang... jú þá eru þeir trúlega farnir að gera gagn ekki satt???
úfff.. þetta eru nógar fréttir í bili... kv Brynja klukkukona
þriðjudagur, nóvember 08, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Ahh gott mál að þú sért ekki liggjandi inn á spítala eða eitthvað.. er búin að vera að reyna að hringja í þig nokkru sinnum en alltaf á tali.. I wonder why.. hehe.
Vonandi færðu eitthvað almennilegt við þessu. Og já.. reyndu svo að hvíla þig ;)
*straumarafsløkun* og *straumarafbatnadarkvedjum* Vonandi ad tu hristir tetta af ter Brynja min og ja hver seigr ad nam se ekki stressandi...;O/ Knus fra Kolding Anna og co
Skrifa ummæli