Ég er kominn heim aftur eftir mjög góðan nætursvefn og vondan morgunmat í boði skattborgara íslands og landspitala háskólasjúkrahús.
Þannig er nefnilega mál með vexti að í gær var allt í sóma, svo fórum við og fengum okkur að borða á KFC (reyndar nefndi ég það við jón að það væri kannski ekki sem best fyrir hjartað að éta þar... en ég fékk mér nú salat... hehehe) Jæja þegar heim var komið gerðum við aðra tilraun til að horfa á þá hrikalega leiðinlegu Stuðmanna mynd "í takt við tímann" alveg hræðileg mynd alveg hreint...
Eníhá þegar við vorum að horfa og ég lá uppi í sófa fór hjartað að slá aftur svona hratt, og ég náði ekki að róa það niður þrátt fyrir trix sem lækninn kenndi mér þegar ég var uppi á spítala nóttina áður. Again hringdi jón niður á bráðamótöku og þau sögðu okkur að ef kastið væri að koma svona aftur ættum við bara að koma niðureftir. Sem við og gerðum, þegar þangað var komið var mér reddað rúmi ég sett í monitor, og hjarta..slaga... mælitæki (hvað heitir þetta eiginlega sem í öllum lækna myndum/þáttum er tengt við sjúklinginn og heyrist svona reglulegt blíbbb í því, svo þegar hjartað breytir um takt fer taktur blíbbsins að æsast?) sem af gefnu tilefni gefur ekki blíbb hljóð frá sér, ja nema þegar maður fer yfir eitthvað visst í slögum, sem ég og gerði.
Ég var bara þarna, orðin frekar slök og bara næstum að sofana þegar hjartað bara rauk af stað og fór upp í 160, sem betur fer ekki alveg jafn slæmt og í fyrrinótt.
Okei til að klára söguna þá eyddi ég nóttinni á spítalanum svo þau gætu fylgst betur með hjartslættinum, og ég svaf ekkert smá vel eftir eina róandi ;) Svo var ég send heim með vottorð fyrir töflum sem eiga að "rétta af hjartsláttinn" og eiga þær að duga þar til ég fer til hjartalæknisins í enda mánaðarins.
Jamm þetta er sagan í dag, vonandi verður þetta ekki eitthvað svipað á morgun.
Kv Hjartans hugljúfa Brynja
laugardagur, nóvember 05, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

10 ummæli:
Æi...Hvurslags er þetta?
Láttu þér nú batna gæskan.
Ja hérna! Slakaðu nú á og láttu Jón stjana við þig :0) Vonandi kemur þetta ekkert aftur, maður verður bara smeykur að lesa þetta :/
Blessuð!
Las hint um þetta frá Lilju á blogginu hennar Ragnheiðar, varð bara að renna yfir þetta allsvakalega atvik!
Vertu svo dugleg að bryðja pillurnar og hvíla þig :o)
Láttu þér batna
Djíses.. það er ekkert annað!!
Vonandi fer þetta ekki að gerast reglulega.. úff
Góðan bata Brynja mín. Vonandi er þetta ekkert alvarlegt!
Brynja mín... þú verður að hætta að hugsa svona dirty um mig öllum stundum... þú gerir bara útaf við hjartað í þér elskan
Úff vesen er þetta á þér stelpa. :S Vona að nú sé öll sagan sögð og þú farir að hressast.
Reyndu nú að gera ekki neitt og hugsa ekki neitt hehe ;)
Kveðja, Rakel
Það er naumast, þú verður nú bara að fara að passa þig elskan mín og hætta þessu stressveseni ;0) Miklu betra að liggja bara með tærnar uppí loft og gera ekki neitt =)
Hafðu það gott essskan!
Hjartalínurit heitir það :)
Láttu þér batna dúllan mín og slappaðu af :D
Brynja mín, hvernig er þetta með þig? Þú verður greinilega að fara slappa af gæskan. Alla vega hafðu það gott og láttu þér batna. :)
Kv, ML-Begga.
Skrifa ummæli