Okei ég reyndi að blogga í gær en ekkert gekk þar sem ég vara bara netlaus í skólanum... veit ekki hvað það á eiginlega að þýða.. ætli kennararnir hafi ekki bara tekið netið úr sambandi svo einhverjir fylgist með í tímum.
Gær dagurinn var líka hrikalegur, ég var eins og undin tuska allan daginn, Lára var svo úrvinda að hún fór heim að sofa, Lilja mætti í tíu mín og fór svo heim að læra og eina umræðuefnið var hvað allir eru orðnir stressaðir.
Skammdegisþunglyndið hrjáir flesta í bekknum þessa dagana, jólin nálgast með ógnarhraða og það eina sem hægir á ferðinni að prófunum er hið gígantíska magn verkefna sem búið er að hrúga á okkur í nóvember.
En ég ætla nú að taka upp léttara hjal.... Sæunn á afmæli í dag og um síðustu helgi fórum við Bryndís og Magga til hennar í mat og kruðerí. Við fórum að kíkja á lífið svona úti á landi *blikkblikk* og fórum á Traffic þar var bara gaman þó ekki svona öfgafullt eins og Magga og Sæunn segja því þær halda ekki vatni yfir tónlistinni sem var nú bara rétt lala.. jæja svo löbbuðum við í hinn endan á bænum eða svona nánast og fórum á hóru/slut/stripp/staðinn C eitthvað... get aldrei munað hvað hann heitir... jæja þar voru ekkert nema dauðir kallar meðfram veggjum.... aðrir slísí gæjar sem fóru í bunum inn í bakherbergi með stelpum í pjöllusíðum pilsum og bikinitoppum. Dísús... og þarna fer fólk...ég ætla að dæma för mína sem eintóma amatörför þar sem ég vissi ekki alveg hvað ég var að fara út í en þangað fer ég ekki aftur takk fyrir....
en myndin er samt til að sýna Sylvíu Nætur svipinn... veit samt ekki hvað Magga er að spá...Brutlan eiginlega bara sú eina sem nær honum ;)

Okei svo er þessi af varalitnum.... nota bene hún er tekin þegar við erum að fara út í leigarann klukkan 3......

Og svo eru það Sæja pæja sem á afmæli í dag og Magga ;)

Aftur á móti er ég rétt að jafna mig eftir helgina í dag... ég er ekki að plata... en á sunnudaginn fékk ég heví hausverk... alveg hrikalegan. Svo á mánudaginn lagaði Jón hann með handayfirlagningu, kannski ætti hann bara að læra hausanudd. Jæja en sökum verkefnavinnu var ég til 2 úti í skóla og hausverkurinn var kominn aftur... og það margfalt til baka þvi í gær var ég orðin svo illa haldin að ég var komin með magakrampa af höfuðverk... spurning að fara kannski bara til læknis og tékka á mígreni.... eða hvað...
jæja nóg að sinni kv moi

5 ummæli:
Steinakellan hefur það bara fínt... ;)
Tónlistin var sko miklu meira en LALA hún var GEGGJUÐ ;)
Annars er sko pointið á myndinni að ég vil ekki vera að apa eftir öðrum *hóst* eða ég gat ekki haldið niðrí í mér hlátrinum.. ég meina hver getur það þegar þrjár blyndfullar Sylvíju Nætur (Díses ég kann ekki að beygja þetta) eru nálægt.. you try it!
Eitt enn.. þar sem amatörreynslan er komin á CASINO þá skulum við ekki láta hafa okkur í það aftur að fara þangað..ókei.. sama hver bíður okkar þar ;)
úúúu sammála síðasta ræðumanni...og casino var nafnið.... got it
Bíddu... ég hélt ég hefði veið búin að commenta hingað!!??!!
En... Flottar myndir :) og sammála því að sleppa Casino næste gang!
Ok... nú er ég búin að fatta hvað ég hef gert rangt... og ekki í fyrsta skipti...
Ég hef bara ýtt áPreview og lokað síðan bara!
Meiri ljóskan hún ég...
Skrifa ummæli