Áhugasamir nemendur og fjöruverkefni í skólanum... brjálað stuð
Það virðast allir hafa svo brjálað að gera að enginn hefur tíma til að uppfæra bloggin sín. Ég var svona að tuða yfir þessu þegar ég athugaði mitt blogg og viti menn vika síðan síðast. Ekki gat ég nú látið það frétta svo here goes:
Hérna kemur helgin í hnotskurn : Sjá bloggið hennar Elfu hér til hliðar ;)
Jamm annað er nú ekki að frétta, við Matti ætlum að vera með notó dag á morgun þar sem leikskólinn er lokaður.
Og já ég reyndi að baka snúða í gær, sem er nú ekki frásögum færandi nema að það gekk bara hrottalega illa. Ég man alltaf hvað mér finnst leiðinlegt að baka þegar ég er byrjðu á því. og það eina sem er líkt með þessu sem ég bakaði og snúðum er að það er nokkurnvegin rétt bragð af þeim. Annað ekki, ekkert svona kanelsykur hringir í kexinu og ekki neitt sem getur kallast hringlaga... eiginlega meira bara sporöskjulagað. Ég ætla að lesa þetta næst þegar ég fæ þá flugu í höfuðið að það sé sniðugt að baka... ja nema ég snúi mér bara að góðvinkonu minni henni Betty. Hún svíkur engann.
Svo er hér ein góð af hinum eðaborna syni mínum í svona ljómandi góðu skapi fyrir og eftir leikskólann í dag.






2 ummæli:
Æi... greyið litla, voru þær svona leiðinlegar við hann á leikskólanum... Að börn nú til dags þurfi að vera í pössun allan liðlangan daginn.
Mömmur eiga bara að vera heima hjá börnunum sínum.
Sjáumst í skólanum á meðan börnin okkar dúsa í pössun.
Ætli Rósa hafi verið að reyna að kyssa hann ;)
Mér finnst gaman að baka.. ég ELSKA að baka.. mundu það þegar nær dregur að afmæli Matta :D
Skrifa ummæli