laugardagur, október 22, 2005

Skrattakollurinn

þessi auglýsing átti nú ekki að koma með myndinni þarna inn.

Ég er orðin spennt fyrir mánudeginum, sveimérþá, ætlum að labba saman bekkurinn og of corse mest allt kvenkynið í skólanum. Upp að skólavörðuholti og þaðan förum við svo með heila genginu í gönguna ... genginu í göngu..

ég er búin að vera að reyna að muna lagið... en get bara munað "þori ég, get ég, vil ég" ég er ekki einusinni viss um það þetta sé rétt hjá mér en ég gúggla það bara... maður getur gúgglað allt ekki satt??

Annars er drengurinn slappur og Jón í skóla/vinnu eða vinnuskóla bæði held ég bara... nema hann sé hjá viðhaldinu.

Hvernig er svo aftur textinn í kirtaninu... man það einhver ??? nú er ég búin að sofa á því og man hann ekki, eins og ég söng hann nú mikið í gær.

Jæja vonandi fæ ég svör við öllum þessum spurningum, svei mér þá barasta

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skemmtu þér vel í göngunni mín kæra.
Batni kveðjur til Mattalings.