já í gær þá gerði ég þetta:
Fór með Matta á leikskólann
Fór í skólann
Sat í tíma, fór út úr honum til að svara í síma, fór aftur inn, fór út að leita að fjöltengi, fór aftur inn og var svo búin.
Fékk mér gott að borða með bekkjarsystrum mínum í tilefni dagsins.
Fór upp í skóla og týndi næstum lyklunum hennar Maríu... hélt þar af leiðandi að hún myndi drepa mig.
Hringdi í Jón til að minna hann á að sækja Matta á réttum tíma.. ekki vil ég leikskólakennaraneminn sjálfur lenda í bálreiðum leikskólastarfskonum á kvennafrídaginn niðri í bæ ef Jón myndi gleyma barninu. En að sjálfsögðu getur hann hugsað sjálfstætt, þrátt fyrir að ég reyni að halda í vonina að hann geri það ekki.
Fékk afhent áfram stelpur/leikur er mennt spjald frá spjaldaframleiðendum bekkjarins.
Labbaði að Skólavörðuholti í fylkingu kennaraháskóla-starfsfólks og nema.
Týndist næstum í konum..drukknaði næstum í konum...
Reyndi að ná í Írisi í síma í uþb klukkutíma og gekk ekki en á meðan hittum við nokkra aðra af algerri tilviljun, en ekki fann Íris okkur, fyrr en seint og síðarmeir.
Var sökuð um að eyðileggja hlaupahjól.. þar sem ég var ranglega borin sökum.
Flaut með straumnum niður að Lækjartorgi, já ég komst sko þangað. Þar sem ég ásamt spjaldagerðar/bekkjarsystrum mínum, gafst upp á því að vera í þvögunni og fórum á Kaffi Viktor.
Labbaði aftur út í skóla og fraus næstum í hel á leiðinni.
Kom heim dauðlúin og þrekin og hvað haldið þið?? ÉG ÞURFTI AÐ ELDA MATINN
jammm... svona var dagurinn í gær!
Áhugaverður ekki satt.
þriðjudagur, október 25, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

5 ummæli:
Það er naumast verið að bjóða þér gull og græna... Á ekki bara að sækja um lán í snatri og gerast svo atvinnubloggari ;)
Jæja þannig að þinn karlmaður á alveg í sér smá karlrembu líkt og minn ;)
Ég vil bara hrósa þér fyrir að meika að fara niður í bæ, ég keypri þangað en snéri snarlega við þegar ég sá allt þetta reiða kvenfólk.. sjæsen maður og ég með tvö börn með mér.. já nei takk!
Það er freistandi Lára.. ég get ekki sagt annað.
Margrét Ása! ég þakka hrósið en veistu ég man bara ekki eftir að hafa séð eina reiða konu! Til tekinn dag alla vegana;) en þú hefðir ekki meikað það með tvíbbakerru, nó vei hósei
Kann nú ekki við annað en að kvitta fyrir mig hérna, þar sem ég er nú komin á listann hjá þér og alles;)
hehe :) eins gott fyrir þig að kvitta kona
Skrifa ummæli