já svei mér þá ef það ætlar ekki bara að haldast snjór hér á suðvestur horninu einn heilan dag.
Síðan ég flutti til Reykjavíkur man ég ekki eftir öðrum degin (heldur en í gær) þar sem snjóaði allan daginn. Ef það hefur komið fyrir áður síðustu 4 árin þá hef ég klárlega verið fyrir austan og því ekki orðið vitni af því.
Annars vorum við spræku mægðin að koma inn úr snjónum. Matthías skemmti sér svo vel úti að ég þurftir næstum að draga hann inn aftur, og var það grátur og gnístan tanna þrátt fyrir að honum væri svo kalt á puttunum að ég var orðin hrædd um að þeir myndu detta af!!!
Annars fór ég með dýrgripinn í myndatöku á fimmtudaginn, það gekk svona upp og ofan, aðalega ofan frekar en upp. En ég fer og sæki myndirnar á mánudaginn og ég hlakka ekkert smá til ;) hér getið þið séð heimasíðu ljósmyndarans
En nú þarf ég að fara að lesa um open material, holowkubba, running records og videotökur :) einstaklega ánægjulegt!!!
svo að lokum: sjáið hvað var búið að gera við bílinn minn í morgun þegar ég kom út!!!!
kv Brynja
laugardagur, október 29, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


5 ummæli:
Þetta er æði, hver er svona klár?
Ég þori að veðja að það varst þú sem breyttir leika síðunni...
Snilldarmynd!
Kv. Oddný
Hey... ég breytti henni ekki neitt... ég vissi ekki einusinni að það væri búið að breyta henni. Demit! verður þetta núna alltaf svona. Mér verði kennt um allt sem gerist á þessari síðu.
Það er nú ekki furða að þetta listaverk skuli hafa verið sett á þennan líka ljóta bíl.. hann verður aðeins skárri við þetta.
Ferðu svo ekki að birta myndirnar úr tökunni, það er jú mánudagur :)
Skrifa ummæli