Það eru bissí dagar, ég veit ég tuða ekki um annað en svona er lífið bara.
Var á foreldrafundi og tróð mér í foreldrafélagið, þýðir víst lítið að tuða alltaf bara og nenna ekki að gera neitt sjálfur, Ekki satt??
Svo var það bara grænt te og núna er klukkan 23:08 og ég á eftir að skrifa 4-6 síðna verkefni fyrir morgundaginn... en ég hristi það nú bara fram úr erminni. Ekki satt?
Annars er ég orðin bíla séní eða svona... búin á hálfum mánuði að fara með bílinn í smurningu, á 3 staði til að reyna að kaupa ljós á hann, í skoðun, að skipta um dekk og á verkstæði sem ekki vildi taka við mér... en ég fer aftur á morgun með kaggann. Það fór nefnilega að blikka eitthvað tryllt ljós í mælaborðinu á leiðinni heim í dag. Mér var tilkynnt það að ég þyrfti að fara með bílinn til að tengja hann við tölvu!!! Já það verður magnað að sjá hvernig þeir gera þetta á morgun ;)
Svo er það bara Akureyri annað kvöld, þ.e. ef við komumst þangað því Lilja sá í fréttum að Siggi stormur spáði brjáluðu veðri... en engin annar spáir því.. svo við rennum bara blint í sjóinn... ja eða norður.
*dæs* best að halda áfram
Kv Brynja óþekktarorms móðir
fimmtudagur, október 06, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

3 ummæli:
Bwahahaha ertu komin í foreldrafélagið.. *kafnúrhlátri* nei sorrý.. ehehe.. hóst.. já gott hjá þér elskan!
Skemmtu þér vel á Akureyri :D
Ég kannast alveg við það að vera bissí þessa dagana...mætti halda að kennararnir væru á einhverju örvandi!! Mér finnst kúl hjá þér að fara í foreldrafélagið og smelltu einum á Elfu og Ottó fyrir mig.
aha aha já já ég geri það ;)
Skrifa ummæli