miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Þrautir hins daglega lífs..

Ég á ótrúlega erfitt núna, ég á við stórvægilegt valkvíðavandamál að stríða á hverjum degi upp úr hádegi. Eftir að ég fór bara að vera ein í hádeginu þá veit ég ekki hvað ég á að fá mér að borða, þetta er ferlegt ég sit hérna glorhungruð fyrir framan tölvuna og langar samt ekki í neitt sem til er í skápunum. *dæs* ef allir ættu nú svona erfitt eins og ég *laaangtdæææs* ég meina á ég að fá mér skyr.is, eða skyr.is drykk? Á ég að fá mér grillaða samloku eða samloku hitaða í örbylgjunni? á ég að elda mér eitthvað eða bara grípa eitthvað úr ískápnum. What to do, what to do?
Ekki tekur þó betra við þegar ég er búin að finna mér eitthvað að borða heldur þá þarf ég að velja á milli þess að horfa á sjónvarpið á meðan eða vera í tölvunni, kostir beggja eru ótvíræðir en ókostir eru þeir að ef ég er í tölvunni er ávallt hætta á endurtekningu á "rauðvínsatvikinu" (ja ég reyndar er ekki með rauðvín klukkan 12 á miðvikudegi) en ef ég er fyrir framan sjónvarpið þá dralsa ég til í stofunni og borða í rúminu, þar sem flutningar inn í hið nýmálaða herbergi hafa ekki farið fram.

og núna 10 mínútum síðar, eftir að hafa aftur og aftur kíkt í skápana í von um að þar breytist eitthvað í dýrindis máltíð fyrir augunum á mér, hef ég tekið þá ákvörðun að ég eigi það bara skilið að ég haupi eftir subway!!! Hohoho já ég er nú búin að vera að skrúbba gólfið inni í herbergi í morgun og málningu af listum og skáphurðum. ER það ekki bara ???? Æi fokkitt ég þarf ekkert samþykki frá ykkur fyrir að lifa svona villtu lífi... adju ég ætla að hlaupa og kaupa mér subbara :Þ

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mér finnst þú alveg eiga það skilið eftir þessa erfiðisvinnu :o) En annars kannast ég mjög vel við þetta valkvíðavandamál í hádeginu...getur tekið marga klukkutíma að ákveða hvað maður á að borða!

Lára sagði...

VÁ... RÓLEGAN ÆSING BRYNJA!!! Hvernig verður þetta eiginlega í prófunum??? Spennó:)

Nafnlaus sagði...

Það er nú meira hvað þú dekrar við sjálfa þig Brynja mín!
Ef allir ættu jafn erfitt og þú...úfff.

Nafnlaus sagði...

Kannast við þetta.
Stundum borða ég ekkert yfir allan daginn því ég get ekki ákveðið hvað ég á að fá mér!

Vonandi var subbarinn góður ;)

Brynja sagði...

Heyrðu já, það var svo enginn subbari. Ég gleymdi að reikna með að skólarnir eru byrjaðir og það var troðið út úr dyrum á subway af UNGLINGUM dumdumdum dummmmmm. Svo ég fór bara í bónus og verslaði í kvöldmatinn og fékk mér einn banana. Svaka máltíð þar ekki satt??

Nafnlaus sagði...

Loosen [url=http://www.greatinvoices.com]invoice online[/url] software, inventory software and billing software to design competent invoices in minute while tracking your customers.