laugardagur, ágúst 27, 2005

Bitte´nú


Sá er snemma sofnar og snemma úr rekkju rís, verður ríkur maður, hraustur og ákaflega vís.

Þetta sagði Benjamin Franklin fyrir langa löngu síðan og mikið vona ég að þetta sé satt því ég sé fram á eldsnemmt rekkjuris á mínu heimili í vetur.
Ég veit reyndar ekki þetta með að sofna snemma því við vorum að segja upp stöð 2 og gerast áskrifendur að breiðbandi símans. Jón fékk sinn heittelskaða fótbolta og ég fékk fullt af útlenskum stöðvum, og þetta var ódýrara heldur en M12 áskriftin sem við vorum með! Spáið í því. "Meira fyrir minna" slagorðið ætti að vera svoleiðis hjá þeim.

Annars heyrði ég í Ingva Hrafni, á Talstöðinni, ég tek það fram að það var algerlega óvart sem ég heyrði í honum því hann er svo **** ritskoðað**** að ég reyni af mesta megni að forðast það að heyra tuðið í honum. Hann var að þusa eitthvað um einokun símans og ég veit ekki hvað og hvað og þetta að skilda landann til að kaupa áskrift hjá sér til að sjá enska boltan.. ég var nú ekki alveg að skilja þetta því ég veit ekki betur en að stöð 2 og sýn hafi gert nákvæmlega það sama þegar boltinn var hjá þeim.
Jæja ég reyndar skipti fljótt af honum svo ég veit ekki alveg hvað hann var að röfla meira. Annars verður að segjast að ég á eftir að sakna stöð2, við erum búin að vera með hana svo lengi og þar eru sýndir þættir sem ég reyni helst ekki að missa af eins og t.d Nágrannar. Úff en ég reyni að þrauka og kem mér bara í stað þess inn í dramatíkina í Eastenders.. hoho ég mun ekki hafa neinn tíma til að læra fyrir sjónvarpsglápi.

Jæja þar til síðar Brynja með kassaaugun

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég sem að bilast því mig langar svo í stöð2...
Ég meina það er allt í gangi í vetur: Idol, Bachelor, Strákarnir, Stelpurar og Það var lagið....

En ég kom hingað inn kæra Magidapokus því mig langaði að biðja þig um hjálp.

Ég veiddi ekkert ´veiðiferðalaginu í fyrra, nú er ég að fara á morgun og verð í þrjá daga. Þú ert rammgöldrótt þannig að þú hlítur að geta gert eitthvað í þessum málum!??!Ég meina, mér er sama þótt ég veiði fjólubláann fisk með rauðum doppum og 2 hausa!

Nafnlaus sagði...

Veistu ekki að maður á að nota boltann til að fá manninn til að fara ÚT úr húsi!
Ég tek undir með Sæunni, allt að gerast á Stöð 2 í vetur!!

Brynja sagði...

tissss ég kem þá barasta í kefló til að horfa á idolið en mér gæti ekki verið meira sama um strákana og bachelor á það ekki að vera á sirkus eða skjá einum??? hélt ekki að það væri á stöð tvö og svo er ég búin að redda því að stelpurnar verða alltaf teknar upp fyrir mig ;)

Heyrðu og í sabandi við kuklið þá skal ég leggja í seið og senda strauma í veiðina til þín ;) sjáum svo hvað setur.