föstudagur, ágúst 19, 2005

Hugleiðingar dagsins í dag

Það er ansi margt sem mér liggur á hjarta í dag, þannig var það áður en ég settist við tölvuna áðan, en núna man ég varla hvað það var sem ég ætlaði að skrifa.

Ég reyndar var að spá áðan pólitík.. verð oft svoldið pólitísk eftir að ég horfi á morgunsjónvarpið eða á íslandi í dag. Þeir ( já þeir því konur eru sorglega fáar í stjórnmálum) þessir kallar sem þarna koma fram til að ota sínum tota, virðast upp til hópa veruleikafyrrtir og gersamlega úr takt við fólk eins og MIG. Hehe auðvitað vill maður því að stjórnmálamenn geri eitthvað fyrir sig. Því varð ég frekar kát þegar ég heyrði Gísla Martein kvarta yfir rólóvöllum í Reykjavík. Ég var nú með stór orð á Hressó um daginn um að ég ætlaði að fara að kjósa bláu höndina en, ég ætla að bakka að eins með yfirlýsingarnar.. en eitt er víst að samfylkinguna kýs ég ekki... Stefán Jón sem ætlar ekkert að hækka laun á leikskólum, og Steinun Valdís sem hækkar leikskólagjöld en ætlar svo að afnema þau... stúpid pípúl.. hvernig væri að hafa gjöld, ekki hækka þau og nota peninginn sem þau eiga afgangs til að hafa leikskólan ókeypis í laun handa starfsfólki og já á meðan ég man.. aðlaga húsakostinn fyrir yngri börn.

dísús ég er hætt að tuða um stjórnmál...

Já svo var ég ekki búin að segja "já takk mér gekk bara vel í prófinu" og ég er að vonast til að fá einkunn í dag.. sjæsje ég fékk bara magapínugæsahúð við tilhugsunina.

Talandi um magapínu... hvað haldið þið að ég hafi fengið í afmælisgjöf?
Jú ég fékk þetta flugferð í 30 mínútur yfir Reykjavík..... og svona sé ég þetta fyrir mér:

Hérna er ég búin að hrapa, og þessi góði maður er að athuga hvort ekki sé allt í lagi !!!


Hérna er svo fleiri kallar komnir til að kíkja á sundurtætt lík mitt... aðalega samt til að athuga hvort eitthvað sé nýtilegt úr vélinni.


Atlílæ bæ... kv Brynja


Djók ég gleymdi ... Matthías er byrjaður á leikskóla.. og það reyndar gengur bara ljómandi... ég og Brutlan héldum upp á ammæli á laugardaginn og það var grillað og gott étið.. Lilja og Ásdís áttu afmæli í gær til lukku með það... Menningarnótt er á laugardaginn .. ég fer nú trúlega ekki þangað... Mamma og pabbi eru búin að kaupa heitan pott... ég fer aftur á móti trúlega þangað..Ég fór á Hressó um daginn það var bara fínt takk... uuuuu já og svo fórum við Matti og hittum the crew (hohoho) í veröldinni okkar í gær.. það var ekkert smá gaman og ég hitti Ernu sem ég hef ekki hitt í ár og öld.

okei nú er ég hætt ... adju Brynja

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir síðas og þarsíðast og.. og.. og....

Brynja! Það er ekki skrítið að þú sért flughrædd þegar þú ert að skoða svona myndir á netinu!!!
Verði þér að góðu og skemmtu þér í háloftunum :D

P.s gerði nýtt blogg handa þér tuðarinn þinn.

Brynja sagði...

vúppí dú ;) annars var ég bara að skoða svona myndir til að geta verið svoldið dramatísk í lýsingum á blogginu

Nafnlaus sagði...

Iss ýmindunarveika kjélling! Þú átt eftir að skemmta þér þvílíkt vel í flugvélinni og átt ábyggilega eftir að verða flugmaður og hætta við leikskólakennarann... og þá kannski hættiru að tuða um stjórnmálin því þá áttu svo mikið af peningum að þér er skítsama hvað leikskólapláss kostar og verður bara fegin að þurfa ekki að strita sem láglaunaður leikskólakennari ;)
Ég er sko mikið búin að pæla í þessu!!

Brynja sagði...

ímyndunarveika... hefur þú ekki séð fréttir undanfarina daga.. eða er það kannski ekki "inn" að skoða fréttir... eníhá þá er búið að vera svona eitt flugslys á dag undanfarna viku, Grikkland, Kolubía, Alsír,...http://mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1154671

http://mbl.is/mm/frettir/leit/index.html?site=mbl&search=flugslys

prófaðu bara að fara inn á mbl.is og slá inn í leitina hjá þeim, flugslys eða hrapaði, nauðlennti bara eitthvað svona leitar orð og það koma minnst 20 fréttir upp !!!

Nafnlaus sagði...

Blebleble... um leið og íslensk vél crashar þá skal ég skilja þig ;)

Brynja sagði...

ulla bara á þig