föstudagur, ágúst 12, 2005

*dæs* og *úfff*

Ég á við stórt vandamál að stríða... ekki bara það að ég þarf alltaf að flækja málin og hlutina fyrir sjálfri mér og öðrum heldur er sest að hyldjúp svartsýni í huga mér. Einstaklega ljóðrænt ég veit en þetta er hvorki árstíminn né stundir til að velta sér uppúr sjálfsvorkun, leti og fílu.
En ástæður fyrir kolsvörtum huga mínum um þessar mundir er fyrst og fremst sú að ég á að vera á full swing í prófalestri. Já lesendur góðir ég er að fara í hið margumskrifaða sálfræðipróf á mánudaginn, og ég hreinlega NENNI ekki að læra fyrir það.
Ég er búin að vera að gaufast í þessu í meira, en þó aðalega minna í 3 vikur, og ávallt huggað mig við það hversu langt er í prófið. Nú stendur svo alvaran fyrir dyrum og ég gat með herkjum og af allri minni orku ýtt á rauða takkan á fjarstýringunni til að slökkva á imbanum. Ekki tók þó betra við þegar ég var sest við tölvuna því auðvitað getur maður ekki byrjað að læra fyrr en hinn heilagi "heimasíðurúntur" er búinn. Því næst leit ég við hér og auðvitað var ekki hægt að byrja að læra fyrr en ég væri búin að uppfæra þessa síðu... Enda sér það hver maður! Ekki dugir að vera með 5 daga gamla færslu. Össsss nei maður getur nú ekki boðið siðsömu fólki upp á svoleiðis, einhverjir gætu jafnvel miskilið færsluna, ekki litið á dagsetningu og haldið að ég ætti enn afmæli.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvernig gekk? Hvernig gekk? Hvernig geeeekkkkkkkk???????

Nafnlaus sagði...

Djöst fæn teinkjú