þriðjudagur, ágúst 23, 2005

í dag er tuttugasti og þriðji ágúst

Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað yours truly datt í huga að gera í gær... þið megið alveg giska en þar sem ég veit að ykkur grunar það aldrei þá skal ég bara auðvelda leikinn og segja ykkur það.... Jamm ég fór bara að mála! Alveg satt, hreinsaði draslið út úr svefnherberginu og byrjaði að mála... eitthvað sem við erum búin að ætla að gera í svona hálft ár og það er jafn langt síðan við keyptum málninguna. Núna er ég semsagt í pásu, með risotto að malla í potti og ég ákvað að kíkka aðeins í tölvuna.

Það eru reyndar búinir að vera fremur rólegir dagar undanfarið, svona eftir prófið sem ég náði btw *vúppídú* Matthías er á leikskólanum lungan úr deginum og ég reyni að finna mér eitthvað að gera (eins og sjá má hér að ofan)

jæja ég ætla að éta risottoið mitt og setja mikinn parmesan á ummmmmmm ummummmmm nammi namm.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Illu er best af lokið Brynja mín :)
og til hamingju með að hafa náð prófinu.

Nafnlaus sagði...

Congratz með að LOKS mála og innilega til hamingju með prófið!!

Brynja sagði...

þeinkjú girls ;)