Hehehe já ég var að fletta á öllum 40 og eitthvað stöðvunum mínum og kom við á pro7 þar sem Charmed er á þýsku. Ótrúleg eljan í þessum þjóðverjum og frökkum að talsetja allt, ekki skrítið að þar kunni enginn stakt orð í ensku.
Annars horfði ég líka á ákaflega spennandi þátt á Discovery áðan, og núna sé ég Stóra Bróður fylgjast með úr öllum áttum, samsæriskenningarnar fram og til baka og núna trúi ég því fastlega að Marteinn Luther King hafi verið drepin í stóru samsæri FBI og Mafíunnar. Magnað hvað maður getur lært af þessu sjónvarpi ;)
Annars er skólinn byrjaður á ný og ég má eiginlega varla vera að því, samviskunnar vegna, að horfa svona mikið á sjónvarpið.
Og í þeim skrifðu orðum ætla ég að horfa á danskan þátt um fjöldamorðingja... úúú best að koma mér vel fyrir og horfa á þetta, áður en samviskan nær yfirhöndinni.
Hej Brynja
miðvikudagur, ágúst 31, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

3 ummæli:
Ussss stelpuskjáta! Skammastuðín!
ég geri það ;)
Ég er bara að glápa á STÖÐ 2 og tjilla yfir stelpunum og strákunum og bráðum amazing race og footballers wifes og Ædol.. :Þ
Skrifa ummæli