Íbúðin okkar er komin á sölu, og hægt er að sjá hana á mbl.is. Fyrir þá sem ekki vita hvar ég á heima, ja þeir verða bara að giska ;@)
og því af gefnu tilefni vil ég biðja Selfossinga um að hafa augun opin fyrir leiguhúsnæði handa mér og mínum, 3-4 herbergja, helst með garði og á viðráðanlegu verði til eins ár eða rúmlega það. Einnig má sama fólk segja mér hvaða leikskóla ég á að setja Matthías á, Nú svo vantar mig einnig vinnu á einhverjum frábærum leikskóla! Ég bið nú ekki um lítið, eða hvað ;@)
sunnudagur, mars 04, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

4 ummæli:
Kúl. Kemur rosalega vel út "nýja" uppröðunin í íbúðinni (veit ekki hversu nýtt þetta er.. hehe)
Vonandi fáið þið gott verð fyrir hana.
Þó mér finnist óendanlega leiðinlegt að þið séuð að flytja!
Hann Reynir Freyr yrði svaka kátur að fá Matta frænda á Glaðheima:)
sá í dagskránni í dag, eða sunnlenska eða eitthvað að það er til leigu í götunni bak við Guðnabakarí, stóra rauða húsið við sýsló.
100 fermetrar á 85 þús. óskað eftir langtíma leigjendum og hiti og rafmagn innifalið.
Heyrðu já ég var búin að hringja þangað og athuga... hef ekki efni á að borga af íbúðinni hér og leigja bæði í einu, svo þetta er nei en takk fyrir ábendinguna.
Skrifa ummæli