Rétt eins og á velflestum þeim heimilum sem ég hef komið inn á má finna í eldhússkápum ýmiskonar vítamín kokteila, en trúlega er allra algengast að til sé lýsi í töflu eða vökvaformi á heimilinu. Þannig er oftast einnig farið í mínum eldhússkápum, en spurningin er samt hversu mikið gagn er þetta vítamín sull að gera okkur?
Jæja ég fór í búð í gær og keypti mér vítamín, svokallaða "Heilsu tvennu" frá Lýsi. Ég las ekkert utan á pakkan en áðan las ég það sem þar stendur. Þar eru ýmiskonar staðreyndir skrifaðar og það er ekkert verið að fela þær neitt.
Hver skammtur, sem samanstendur af einni vítamín töflu og einni lýsistöflu, innihaldi fjölvítamín, steinefni og að vítamíntaflan sé nú öflugri en áður. Ég las aðeins áfram og sé þá að það eru frekar áhugaverð hlutföll af vítamínunum í hylkinu, sem dæmi má nefna að það er 147% af ráðlögðum dagskammti af Pýrídoxín sem er B6 vítamín, það er 150% af B- 12 vítamíni og það er 167% af ráðlögðum dagsskammti af Sinki. Prósentan er miðuð út frá ráðlögðum dagsskammti fyrir 11 ára og eldri.
Því næst las ég um innihaldið í lýsistöflunni, þar er nefnt að sé þrjú efni tvö tilheyra lýsinu en þar er E vítamín, sem bætt er í lýsið. Þá verður mér litið á tvær litlar stjörnur sem eru við magnlýsinguna á E-vítamíninu og sé þá að samkvæmt manneldisráði þá eru í þessum heildar skammti af Vítamíni og lýsi u.þ.b. 120% af ráðlögðum dagskammti af E vítamíni.
Þetta þótti mér frekar undarlegt, hvers vegna er verið að gefa manni eitthvað sem er rúmlega daglega þörf?
Nú verð ég að viðurkenna að ég man ekki hvaða vítamín eru vatnsleysanleg og hvað vítamín það eru sem gjörn eru á að valda eitrunum í miklu magni svo að ég prófaði bara að gúggla þessi vítamín.
Um E- vítamín.. þá fann ég þessa fræðandi grein frá landlæknisembættinu, í henni stendur meðal annars að dagskammturinn sé ekki nema 8 mg þó það standi að það sé 10 mg utan á pakkningunni. Ennig að engar rannsóknir sýni fram á gríðarlega forvarnarhæfni þess að gleypa of mikið af e-vítamíni. En þegar ég las þessa grein hér á Doktor.is kom í ljós tilgangur E vítamínsins í lýsinu, það var ekki fyrir hag okkar neytenda heldur virkar það eins og þrávarnarefni. En þá stendur enn spurningin hversvegna er ekki bara 80% af daglegum skammti í vítamín hylkinu og svo síðustu 20% í lýsinu?
Um B6 fann ég.. að það er vatnsleysanlegt og því fer umfram magn út með þvagi, þó geta eitranir komið fram ef það er tekið mjög mjög mikið magn í langan tíma, í raun virðist það vera sniðugt að hafa of mikið af þessu vítamíni í þar sem það eykst þörfin fyrir það hjá konum sem taka pilluna og hjá fólki sem er undir álagi af einhverju tagi. Konur sem finna fyrir fyrirtíðarspennu ættu einnig að taka inn B6 vítamín. Þessar upplýsingar eru héðan af Doktor.is
Um B- 12 fann ég.. að nánast ómögulegt er að taka of stóra skammta af því, og það finnst nánast eingöngu í dýraafurðum. Þetta er mjög mikilvægt vítamín sem hjálpar líkamanum við að endurnýja sjálfan sig. þessar upplýsingar eru lika af doktor.is
Um sinkið fann ég.. að það hjálpar líkamanum við að byggja upp sjálfan sig og flýtir fyrir því að sár gróa og annað. Ofskömmtun er sjaldgæf en það getur haft áhrif á járnið í líkamanum að taka of mikið af sinki. Þetta er líka tekið af Doktor ef þið skiluduð vera að spá í því.
En þá er það komið á hreint að þetta er bara svona alltílagi að það sé of mikið nema kannski ef væri E- vítamínið... en það er ágætt að skoða stundum það sem maður er að láta ofan í sig...
fimmtudagur, febrúar 15, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli