miðvikudagur, janúar 24, 2007

HM í Handbolta!!

Ójá HM æðið hefur náð tangarhaldi á mér, og ég æpi og öskra hér yfir leiknum rétt eins og ég sé í höllinni sjálfri. Ég fór svo í sigurvímunni eftir leikinn að kíkja á Í blíðu og stríðu síðuna ég mæli sérstakleg með því að lesa bloggið hans Vignirs. Guðjón Valur og Einar Örn blogga líka en aðalega samt um prumpu og kúkafýlu... hehe það er samt svoldið skondin sambúð hjá þessum mönnum.

Svo er það bara Pólland á morgun klukkan 17:30... koma svo ÁFRAM ÍSLAND ... eða hvað ;)

2 ummæli:

Lára sagði...

Ísland... Best í heimi!!!
Greyin, ég skil þá alveg að vera með ræpu undir þessari pressu :S

Nafnlaus sagði...

Ég elska bloggið hans Vignirs, hann er svo skemmtilega steiktur.

Áfram Ísland.. að sjálfsögðu!