mánudagur, nóvember 20, 2006

Jámm senn líður að jólum

Eins og flestir vita líður senn að jólum, en það sem er mun meira áríðandi er að nú stendur yfir haustverkefna/jólaprófatörn. Henni mun ekki ljúka fyrr en að kvöldi 14 desember og hlakka ég ekkert smá til. Ég og Lilja er um að hugsa um að láta skrá okkur í sambúð næstu þrjár vikurnar eða svo þar sem ég mun eyða mestum tíma mínum með henni. Held svei mér að næsti vetur verði ekki svipur hjá sjón þegar ég hef hana Lilju "mína" ekki mér við hlið. (Sko Matthías talar alltaf um hana Lilju "þína" sem dæmi: Hvar er Lilja ÞÍN, ertu búin að týna henni Lilju ÞINNI, Mamma átt þú Lilju)
En hér koma svo myndir frá 13.5 stiga frosti að Fossi um helgina ;)







3 ummæli:

Lára sagði...

Vó! Bíddu ert þú að læra vefsíðugerð eða...
Hehehe alltaf jafndugleg að fikta á verkefnatíma. Klassíker... Maður ætti kannski bara að fara skella sinni í jólafötin.

Nafnlaus sagði...

Úff, bara jólagleðin beint í æð! Flott lúkk.

Ég hlakka líka til þegar verkefnatörninni hjá þér lýkur ;) Ég er ekkert voðalega hrifin af þessum skóla þínum, ef þú skyldir ekki vita það.

Linkurinn á bloggið mitt fylgir ;)

Brynja sagði...

Magga það er enginn tengill hjá þér :(