ég er nú orðin ósköp kærulaus með þessa síðu en tími ég ekki að hætta henni.
Ég var að koma af foreldrafundi, og enn finnst mér fáránlegt að ég sem er sko bara enn 16 ára... ja eða næstum því sé að sitja foreldrafundi og viti menn sé bara líka í foreldrafélaginu. Og til að toppa þetta allt er ég að fara að útskrifast í vor sem leikskólakennari... já KENNARI með stóru kái. Fáránlegt að vera komin að þeim tímapunkti i lífinu þar sem það er bara hægt að hætta í skóla með góðri samvisku.
Annað eftir foreldrafundinn áðan kom ég heim og horfði á ANTM og þar er leynigestur frá íslandi... eða er alla vega tvífari einnar sem ég kannast við. Og nú eru það bara þið sem þurfið að giska hver hinn helmingurinn í tvífaraleiknum er.
miðvikudagur, september 27, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



1 ummæli:
Ég hef ekki hugmynd þannig að ég geri ráð fyrir að ég þekki ekki viðkomandi en Mollie Sue er flott!
Skrifa ummæli