föstudagur, ágúst 25, 2006

Ég er næstum enn södd..

..eftir matarboðið í gær 12 manns + 2 börn ( þá er mitt eigið ekki talið með því hann svaf á sínum græna frá því um hálf sjö. En það er nú önnur saga...
Já matarboðið hér kemur ein mynd af því, enda var það að mínu mati ákaflega vel heppnað ég veit nú ekki hvort allir séu jafn ánægðir með að myndin komi hér inn en mér er nú nokkuð sama um það.

Ragga bara eitthvað ekki með á nótunum þegar myndin var tekin, ekki það að Ragga sé oft utan við sig nei nei. En já hér koma svo uppskriftirnar þar sem gríðarlegur áhugi var fyrir því að nálgast þær.
Lasagna að hætti Benediktu
Já ég bragðbætti lasagnaðið með því að setja svoldið timjan út í sósuna og líka svoldið rósmarín en það er ekkert nojað ef þú átt það ekki til... já og svo til að gera svona hvíta sósu með þá bræddi ég bara 1 dós af rjómaost til að setja ofan á hvert lag af plötum sem sett var .. það gerir ferlega gott bragð. (p.s þá tvöfaldaði ég uppskriftina fyrir 12 manns og það mátti ekki vera neitt mikið minna.)
Súkkulaðiofurbomba a la Jói fel (fannst svoldið fyndið að setja þennan link en ekki linkinn af þáttunum því þegar ég gúgglaði kökuna kom þessi fanclub síða upp.. hvað er það að það sé fanclub í kringum Jóa Fel... svona rísið upp úr ræsinu fólk!!(ps þá heitir kakan blaut súkkulaði kaka með ís))
Brauð keypt úr góðu bakaríi
Ís er hægt að nálgast í nánast hvaða verslun sem er.

Verði ykkur að góðu !

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir mig. Þetta var æðislegt matarboð! Mjög gaman, skemmtilegt fólk, frábær matur, góð stemmning. Verðum að gera þetta aftur! Takk fyrir okkur.

Nafnlaus sagði...

anonymous hvað. . ...Þetta var semsagt frá mér.