Í dag er fyrsti dagur í páskafríi, ég get ekki annað sagt en að hann er langþráður.
Svo er ekki nema rétt rúm vika í bústaðarferð, skipulag er í hámarki og þegar sjö kvenmenn koma saman til að skipuleggja myndi maður búast við .. ja þið vitið.. en þetta gengur allt bara ljómandi. Allar svo lukkulega að sleppa frá börnum og/eða körlum að engin hreyfir mótmælum. Enda er nú ekki mikið að mótmæla, planið er að fara, sofa út, slappa af, borða góðann mat og spila. Skilst að planið sé mest megns svona og mér líkar það vel ;)
En jamm Gleðilega páska og ekki borða yfir ykkur af súkkulaði, ekkert gott getur hlotist af því ;)
miðvikudagur, apríl 12, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

1 ummæli:
ahhhh get ekki beðið!
Skrifa ummæli