þriðjudagur, mars 28, 2006

ó ó æ æ aumingja ég!

Það voru rifnir úr mér endajaxlar í morgun, ég var lygilega ekki stressuð fyrir þessu. Að sjálfsögðu sagði ég tannsanum hverstu stressuð ég væri og samtalið fór einhvernvegin svona fram :
Hann: Jæja segiru ekki bara allt gott?
Ég : Ég er eiginlega svoldið móðursjúk, hérna sko ég er eiginlega bara stjörf af hræðslu.
Hann: Ha?? Hvað segiru, þá er bara um að gera að hugsa eitthvað fallegt á meðan.
Ég (já já rétt á meðan þú treður töngum á við naglbít og rífur úr mér góminn): Ehheeeheheee já já
Klinkan: Fallegt! Ekki hugsa þá um hann.
Hann: Hahahaha jú hugsaðu þér bara mig í sundskýlu það ætti nú að vera fyndið
Ég fór að hlægja
Klinkan: Það er nú ekki fallegt að hugsa um það!!
Hann : Sko ég hugsa alltaf um tannlækninn hérna við hliðinaá á nærbuxunum þegar ég vil skemmta mér.
Ég verð að viðurkenna að ég hló við tilhugsunina.
En jæja ég var sest í stólinn og hann byrjaði að deyfa mig.. og deyfði og deyfði ... jæja hann kveikti svo bara á frends og fór fram. Á meðan Chandler tilkynnti það að hann þyrfti að flytja til Thulsa vegna vinnunar fann ég hvernig andlitð á mér varð eins og hjá manneskju sem er að jafna sig eftir heilablóðfall. Ég er ekki að ýkja þegar ég segi að það dofnaði á mér hársvörðurinn... á enninu.... ég sver það, líka aftur fyrir eyru og niður hálsinn ég var sko mjög vel deyfð... öðru megin!!! Hinumegin virkaði deyfingin ekki mjög vel. Jæja hann kom svo með eitthvað sem lýktist ísbrjóti og fór upp í mig skrapaði ýtti og poppp tönnin farin úr.
Þá reyndi hann hinumegin... það gekk ekki nógu vel þar.. okei hann reyndi ég skrækti, hann deyfði meira, og ég neitaði að opna munninn, og svo reyndi hann með ísbrjótnum hjakkaðist smá og svo þurfti hann að sannfæra mig smá að opna aftur munninn og svo kom hann með risa töng og togaði og hún losnaði. Ég get samt ekki sagt að ég hafi fundið neitt til að ráði, verst var þegar hann var að deyfa mig...
Svo núna lít ég út eins og hamstur og má bara borða fljótandi í einhverja tvo dag.. aumingja ég..

hér eru svo tröllin sem dregin voru út:

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er ekki langt síðan ég lét draga mína úr og mæómæ hvað það var VONT! Það var líka skorið og saumað og svona hjá mér því þeir lágu á hlið.
Ég var nú bara með lokuð augun á meðan á þessu stóð.
En vó maður.. fékkstu að eiga þína.. shjitt hvað ég hefði ekki viljað það.. fara þeir svo í ramma eða hvað ??

Lára sagði...

Hahaha! Fyndin tannlæknir og klínka... og þú líka Brynja mín :)

Brynja sagði...

heyriði og ég er bara ekkert bólgin!! Magnað fyrirbæri