ég er sko bara nánast ekkert búin að fara á netið síðasliðinn hálfan mánuð og það er mín afsökun punktur basta.
Vettvangnámi er að ljúka á morgun, ótrúlegt hvað þessar sjö vikur eru búnar að vera fljótar að líða.
kvíði svoldið fyrir foreldrakaffisamsæti sem ég er að halda á morgun á deildinni en það er nú bara léttur fiðringur fyrir því ekkert meira en það.
Svo byrjaði tölvan líka eitthvað að bila #$T%B$#$% (Lukku-Láka blót) einhver villumelding, en held að ég hafi eitthvað skítmixað hana í lag. Mér fróðari konur sögðu að væntanlega færi harðidiskurinn að fara að hrynja... gef ekki mikið fyrir það.. því ef ég geri það þarf ég að taka bakköpp af öllu heila gilleríinu.. sem ég ætti nú að drífa mig í.
Já og meðan ég man, núna eins og staðan er í dag erum við eigendur af tveim íbúðum ahaha við erum búin að kaupa en ekki búin að selja, svo ef ykkur vantar 15.5 milljóna króna 67 fermetra íbúð í grafó.. þá er mín sko til sölu.. aha já og ég aka við flytjum 1. maí
miðvikudagur, mars 15, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Ohh gengur ekkert að selja??
Þrátt fyrir nýju málninguna ;)
Hún selst pottþétt.. you'll see!
Mikið er nú gott að vita af þér þarna í blogginu þínu... Hélt að það væri búið að týna þér :S
Kanntu ekki trixin við það að selja íbúð?
Bökunarlykt, kertaljós, lokað inní öll herbergi, sem þú opnar auðvitað þegar þú sýnir... og ekki segja frá neinu neikvæðu um íbúðina!!!
Skrifa ummæli